Úrval - 01.04.1947, Page 13
Fáir kunnu betur en
Kínverjar listina —
Að njóta lífsins.
Grein úr „The Bond Between All“,
eftir Frederic Loomis.
OPAKMÆLIÐ, sem varð til-
efni eftirfarandi sögu, hef-
ir oft verið notað á síðari árum.
Skáldið Robert Service orti
kvæði út af því, og árið 1938
hafði Max Levner það fyrir tit-
il á bók, sem f jallaði um hættur
þær, er steðjaði að lýðræðinu.
Ég veit ekki, hvort Robert Ser-
vice er höfundur þessa spak-
mælis, hvort einhverjir hafa
lesið það í kínverzkum garði eða
það hefir borizt til okkar á sama
hátt og önnur kínverzk spak-
mæli.
Ég hefi margoft sagt söguna
af bréfinu, sem ég fékk fyrir
mörgum árum; það hafði svo
mikil áhrif á mig. Og hvar sem
ég hefi verið staddur, hefir sag-
an jafnan haft djúp áhrif á þá,
sem á mig hlýddu. Bréfið hljóð-
aði svo:
Kæri læknir.
Þér skuluð ekki verða undr-
andi, þó að þér fáið þetta bréf.
Ég undirrita það með skírnar-
nafni mínu einu; eftirnafn mitt
er sama og yðar.
Þér munið sjálfsagt ekki eft-
ir mér. Fyrir tveim árum lá ég
í sjúkrahúsi yðar, en annar
læknir stundaði mig. Bamið
mitt dó sama daginn og það
fæddist.
Þennan dag kom læknirinn til
þess að líta á mig, og um leið og
hann fór, sagði hann: „Það er
læknir hérna, sem heitir sama
nafni og þér; hann sá nafn yðar
í bókunum og fór að spyrja um
yður. Hann sagðist ætla að
heimsækja yður, því að verið
gæti að þið væruð skyldmenni.
Ég sagði honum, að þér væruð
nýbúinn að missa barnið yðar
og kærðuð yður ekki um heim-
sóknir, en ég væri því ekkert
mótfallinn.11
Svo komuð þér og settust við
rúmið mitt. Þér sögðuð ekki mik-
2*