Úrval - 01.04.1947, Blaðsíða 43
KOLUMBUS FINNUR AMERlKU
41
unum og hann bærði varirnar;
hann var augsýnilega að biðjast
fyrir. En annar hinna innfæddu
manna frá Hollywood lét dæl-
una ganga:
„Þér, herra Kolumbus, leikið
hlutverk Amerigos Vespuccis,
sem Spánardrottning er bálskot-
in í. Hann, aftur á móti er bál-
skotinn í rússnesku prinsess-
unni Grishku. En Richelieu
kardínáli mútar Vasco da
Gama, og lætur senda yður til
Ameríku með hjálp Lady
Hamilton. Hin djöfullega ráða-
gerð hans liggur í augum uppi.
Sjóræningjar ráðast á yður á
rúmsjó. Þér berjist eins og ljón.
Orastan tekur þrjú hundruð
metra af filmu. Þér kunnið að
vísu ekki að leika, en það skift-
ir ekki máli.“
„Hvað skiftir þá máli?,“
stundi Kolumbus upp.
„Að þér séuð þekktur mað-
ur, herra Kolumbus. Þér eru nú
þegar orðinn þekktur, og fólki
leikur mikil forvitni á að vita,
hvernig svo virðulegur og lærð-
ur maður berst við sjóræningja.
Myndin endar á því, að þér finn-
ið Ameríku, en það skiftir ekki
máli. Aðalatriðið er bardaginn
við sjóræningjana. Þér skiljið?
Við höfmn allt sem með þarf
— atgeira, stríðsexir, vígslöngur
og þessháttar. Eruð þér sam-
þykkur?“
„Ó kei,“ sagði Kolumbus, og
titraði frá hvirfli til ilja.
Seinna þetta kvöld settist
hann niður og skrifaði Spánar-
drottningu eftirfarandi bréf:
„Ég hefi siglt um mörg höf,
en hvergi hefi ég fyrirhitt svo
frumstæða menn. Þeir þola ekki
kyrrð, og til þess að geta notið
hávaðans betur, hafa þeir byggt
sérstaka vegi á járnsúlum um
borgina og eftir þeim bruna
jámvagnar dag og nótt, og af
því hlýzt skrölt, sem hinir inn-
fæddu eru svo hrifnir af.
Ég hefi ekki ennþá sannreynt,
hvort þeir eru mannætur eða
ekki, en að minnsta kosti éta
þeir heita hunda*). Ég hefi með
eigin augum séð mörg veitinga-
hús, þar sem vegfarendum er
boðið að bragða á þessum rétti,
og er bragðgæðum hans hrósað
mjög.
Hér anga allir af einkenni-
legri lykt, sem á máli hinni inn-
fæddu er kölluð „benzín.“ Allir
götur anga af þessum þef, sem.
okkur Evrópumönnum finnst
óþægilegur. Jafnvel ungar
*) Hot dogs: Svo nefna Ameríku-
menn heitar pylsur. (Aths. þýð.).
6