Úrval - 01.04.1947, Page 132
Byggt úr bólum.
Grein úr ,
eftir Dyson
Fyrir ekki löngu horfði efna-
fræðingur, sem vann í stórri efna-
verksmiðju, á barn sitt sem var
að leika sér að þvi að blása bólur
í tyggigúmmiið sitt. Allt í einu
kom glampi i augu hans. Hann
tók það sem eftir var af gúmmí-
inu og fór með það inn í rann-
sóknarstofuna sína. 1 huga hans
hafði lostið nýrri hugmynd, sem
nú hefir orðið upphaf að nýjum
stóriðnaði.
Vísindunum hefir tekizt að gera
einn af óskadraumum bamanna að
veruleika: að blása bólur, sem
aldrei springa. 1 sex nýjum verk-
smiðjum er nú unnið að því að
blása slíkar bólur. 1 einni verk-
smiðjunni er „bóluefnið" plast.
Sérstakir belgir blása lofti í bráð-
ið plastefnið, svo að það verður
að ljósleitu frauði. Bólumar eru
örsmáar og allar jafnstórar. Þegar
blásturinn hefur náð vissu marki,
er frauðið kælt, og þegar það er
orðið kalt, er það nákvæmlega
eins og sápufroða í föstu ástandi.
Þetta nýja efni er tíu sinnum
léttara en korkur og algerlega
vatnsþétt. Á stríðsámnum var
það notað í báta og fleka, sem
ekki gátu sokkið. Þó að það sé
svona létt, er það níðsterkt. Það
STEI NDDR
,Allt“,
Carter.
er hægt að skera það og sníða til
með venjulegum smíðaverkfæmm.
Til hitaeinangrunar er það frá-
bært vegna þess, hve mikið loft
er í því. Auk þess er það ódýrt,
og mun því sennilega verða mikið
notað til einangrunar í kælirúm-
um, kælivögnum og kæliskápum.
Athyglisverðasta sönnunin um
notagildi þessa nýja efnis er not-
kun þess í sumarbústaði. Veggir
og þök er gert af stómm flekum
úr bóluplasti. Himnan utan um
hverja einstaka bólu er svo þunn,
að dagsbirtan kemst í gegnum
veggina og verður þægileg birta
inni, án þess nokkrir gluggar séu
á húsinu.
Húsameistarar em nú að rann-
saka, hvort unnt verði að nota
bóluplastið í stór hús, þar sem
búið er allt árið. Það yrði mikill
hitaspamaður að því, ef hægt
yrði að komast af án glugga.
Öðmm efnafræðingi datt snjall-
ræði í hug, þegar hann sá konu
sína við bakstur. Hann sá hvemig
þykkt og þungt kökudeigið bólgn-
aði og varð gijúpt við það að sett
var í það lyftiduft, sem við mynd-
un kolsýrulofts myndaði ótal smá-
bólur. Hann hóf strax tilraunir i
efnarannsóknarstofu sinni.
Framhald á 3. kápusíðu.
SPHENT H.F.
V