Viðar - 01.01.1937, Page 7
Viðar]
Á framtíðarvegi.
Eftir Þórodd Guðmundsson.
Þegar „V i ð ar“ hóf göngu sína í fyrra, gerði ég mér
sízt glœsilegri vonir um hann, en þegar hafa náð að rœt-
ast. Raunar hefir sitthvað verið að honum fundið, og sumt
með rökum. Verður allt slíkt yfirvegað og endurbœtur
gerðar, eftir því sem við verður komið.
Sú breyting hefir orðið á, að „Félag héraðs- og alþýðu-
skólakennara“ hefir nú tekið ritið að sér og reynir að sjá
því borgið, hvað ritstjórn og útgáfu snertir. Hinsvegar
verða nemendasamböndin sá grundvöllur, er ritið byggist
raunverulega á, fjárhagslega séð. Þó er þess vænzt, að
skólarnir taki einnig nokkurn peningalegan þátt í útgáf-
unni.
Til þess, að fjármál „Viðars“ komist á fastan fót, hefi
ég, í samráði við formdnn kennarafélagsins, með tilstyrk
Sigurðar Oddssonar prentsmiðjustjóra, gert kostnaðar-
áætlun vegna útgáfu II. árg. Út frá þeirri áætlun hefi ég
svo reiknað kostnaðarverð hvers eintáks. Eru skólarnir
skyldir að greiða því verði þau eintök, er þeir biðja um.
Að þessu sinni er verð hvers eintaks áætlað kr. 3.00. En
eftir því, sem kaupendatalan hœkkar, lækkar kostnaðar-
verðið, að öðru jöfnu. Aukatekjur verða lagðar í sjóð til
oi'yggis og tryggingar framtíð ritsins.
Hvað efni ritsins snertir framvegis, ríður á því, að lögð
verði stund á aukna fjölbreytni. Verða allir hlutaðeigend-
ur að hafa það í huga. Það varðar líka miklu, að allir, sem