Viðar - 01.01.1937, Page 55
Viðar]
Smíðakennslan á Laugum.
Eftir Pál H. Jónsson.
Hin fyrri ár héraðsskól-
ans á Laugum var sú til-
högun höfð á námi hér, að
nemendur eldri deildar
fengu að velja sér aðal-
nám, eftir áhuga hvers og
eins. Voru þá að jafnaði
nokkrir, sem völdu sér
smíðar að aðalnámi; enda
hafði skólinn þegar í upp-
hafi átt því láni að fagna,
að ráða til sín smíðakenn-
ara, Þói’hall Björnsson frá
Ljósavatni, sem í einu var
listrænn þjóðhagi og á-
gætur kennari. Má segja,
að með því væri á hinn
asskilegasta hátt, séð fyr-
h' smíðakennslu við skólann. Aðalnám í bóklegum fræð-
Um lagðist síðan niður, en þriðja deildin myndaðist við
skólann, sem venjulegast er kölluð smíðadeild, auk eldri
°g yngri deildar. Stunda nemendur þeirrar deildar mest
smíðar, en taka þó nokkurn þátt í öðrum greinum kennsl-
unnar, að miklu leyti eftir sjálfs vali, íslenzku, reikningi,
^ungumálum, leikfimi, sundi o. fl.
Ástæður þess, að smíðar urðu sú námsgrein, sem varð
hér til einskonar framhaldsnáms, voru ýmsar. Forráða-
^nenn skólans munu hafa litið svo á, að verkleg kennsla