Viðar - 01.01.1937, Page 88
[Viðar
Á Sprengisandi.
Eftir Konráð Erlendsson.
Við ríðum suður frá túninu á Mýri í Bárðardal og stefn-
um inn til öræfa. Að baki okkar er Þingeyjarsýsla, næst á
að koma til bæja suður í Biskupstungum. Daginn áður
hafði verið glaða sólskin, blæjalogn og hiti mikill. Nú var
fullt loft og hægviðri, en auðséð að norðanátt var í aðsigi,
enda var veðurstofan búin að spá norðanátt, og þá er ekki
til neins fyrir náttúruna að þverskallast. „Þið verðið á
undan rigningunni niður af,“ sögðu bændurnir á Mýri.
Veðraskilin eru oft um Kiðagil. Og betra ferðaveður en
nú var gat ekki hugsast, blíðviðri, en þó ekki of heitt.
Þetta var 25. júlí 1936. Við vorum 4 saman með 14
hesta og höfðum mjög lítinn farangur. Þess vegna var
hægt að fara greitt eða jafnvel allgeyst, því ekki þurfti að
ríða sömu hestunum lengi í senn. Landsímastjórinn og
Stefán .Filippusson taka götuna og ríða fyrir, við Knútur
Arngrímsson rekum lausu hestana á eftir. Skammt sunn-
an við Mýri förum við austur yfir Mjóadalsá. Er þá kom-
ið í svokallað Litlutunguland, sem nú er heimaland frá
Mýri. Við förum ekki langt frá eyðibýlinu Litlutungu.
Þar er nokkuð blásið land, en slægjur eru þó töluverðar í
landareigninni, og beitiland ágætt, snjólétt á vetrum og
vorgott. Litlatunga fór í eyði árið 1879. Síðasti bóndinn
þar hét Eiríkur Björnsson. Hann bjó þar í 44 ár, svo ekki
hefir hann unað þar illa hag sínum. Hann stundaði sil-
ungsveiði í íshólsvatni og bar oft veiðina heim á bakinu.
Á gamals aldri bar hann einu sinni þar að sunnan 70
punda þungan bagga, og sagði að það væri „óþægðar
skjatti fyrir sjötugan mann“. Vegalengdin er um 5 km.
Börn Eiríks fóru til Ameríku. ■— Annar Litlutungubóndi
var hinn alkunni hagyrðingur, Illugi Einarsson. Hann var á