Viðar - 01.01.1937, Page 90
88
Á SPRENGISANDI
[Viðar
túnið er slegið flest sumur. Nú var þar mikið gras kring
um bæjarrústirnar. Suður frá vatninu er samfelldur gróð-
ur langt inn eftir dalnum, en hlíðarnar beggja vegna eru
uppblásnar. Þetta er nú afréttarland. Síðasti bóndi í ís-
hóli var Jón Þorkelsson frá Víðikeri, hinn kunni ferða-
garpur, sem Jónsskarð í Dyngjufjöllum er kennt við.
Frá íshóli liggur leiðin suðvestur yfir hálsinn milli ís-
hólsdals og Mjóadals. Sér þar fyrir stíg í brekkunni og
varða er á brúninni til leiðbeiningar. Á hálsinum verður
fyrir okkur hópur tryppa. Þeim verður starsýnt á frænd-
ur sína, sem við höfum meðferðis, vilja gjarna slást með í
förina og fara margar sveiflur í kringum okkur. Loks
tekst okkur að fæla þau frá og þau taka á rás í áttina til
Ishólsdals. — Við komum fram á vesturbrún hálsins. Fyr-
ir fótum okkar liggur Mjóidalur djúpur og gróðurríkur
eins og byggð væri. Langt inn til landsins blána hlíðar
hans í fjarska. Undir vesturhlíðinni, lítið eitt norðar en
við erum, blasa við rústir Mjóadalsbæjar. Þar var búið til
1894. Þar átti St. G. Stephansson einu sinni hejma. Þessir
bæir, Ishóll og Mjóidalur, voru um langan aldur útverðir
byggðarinnar við barm öræfanna. Nú er sögu þeirra lokið.
Mjóidalur er geysilangur og er þar ekki um veg að
ræða. Þegar kemur innan til í dalinn, þar sem hann er
orðinn grunnur og gróðurlítill, taka við samfelldar vörður.
Það er byrjun varðanna á Sprengisandsvegi. Afréttarland
hið bezta er á Mjóadal. Afréttarlöndin fram af Bárðardal
vestan Skjálfandafljóts, allt fram að Jökulfalli, eru einu
nafni nefnd Vesturafréttur. Var aðal fjármagnið jafnan á
Mjóadal. Meðan fráfærur tíðkuðust og geldfé var margt,
var rekið þangað fé af öllum bæjum í Bárðardal vestan
fljóts og úr suðurhluta Kinnar. En síðan hætt var að færa
frá, eru flestir hættir að reka þangað suður. Þótti mér nú
dauflegt að ríða um Mjóadal við það sem áður var, því
ekki sást nema kind og kind á stangli.
Þegar Mjóadal sleppir er komið inn á meginhásléttuna.
Eru þar grjót ein og auðnir. Fer þá víðsýni að aukast.