Viðar - 01.01.1937, Page 113
Vióar]
FRÁ ÚTLÖNDUM
lii
fagrir handunnir hlutir, er lífrænn áhugi fyrir starfinu.
Arum saman sækja menn skólann, en aðrir sækja þangað
fyrirmyndir til að vinna eftir heima í tómstundum. Og
konur sýna engu síður listræni og áhuga en karlar. Leggja
þær mjög stund á vefnað og leðurvinnu.
í matreiðsludeildinni eru æfðar allar listarinnar reglur,
sem henni til heyra. Sérstakar deildir leiðbeina um með-
ferð ungbarna. Kenndur er hljóðfæraleikur og „Kontrakt-
bridge“, leikfimi og listdans, hnattleikar og hraðritun og
yfirleitt allt, sem ungir og gamlir vilja læra.
Nemendur eru á öllum aldri, frá 18 ára til sextugs eða
meira. Sumir hafa eigi aðra menntun en þá, er barnaskól-
inn veitti þeim áður. Aðrir eru háskólaborgarar. Þarna
agar öllum manntegundum saman: Húsmáeðrum, skrif-
stofumönnum, sölukörlum og kennurum.
Sem kennarar og leiðbeinendur við skólann eru valdir
mestu atkvæðamenn í Milwaukee-héraði.
Frá því í byrjun nóvember þar til um miðjan marz eru
haldnir fyrirlestrar á sunnudagskvöldum af frægum land-
könnuðum, vísindamönnum, listamönnum og skriffinnum.
Þessir fyrirlestrar eru svo vinsælir, að á síðustu sex árum
hefir tala áheyrenda vaxið frá 500 til 1200.
Á sunnudagskvöldum eru iðkaðir skipulagsbundnir knatt-
leikar og kappraunir háðar. Og nú er verið að skipuleggja
æfingar í vetraríþróttum, hockey, skautahlaupum og sleða-
ferðum. Kennt er sund og allskonar sundlistir.
Tónlistariðkunn skipar þarna öndvegissess. Shorewood
a Capella kór hefir aflað sér álits og viðurkenningar víða
um Bandaríkin.
Menn njóta ókeypis kennslu í mörgu af því, er skólinn
lætur í té. En í sumum deildunum er krafizt lítilsháttar
kennslugjalds.
Öndvegisgildi þessa skóla liggur í því, að hann miðlar
einhverju við allra hæfi. Hann kennir fólki að meta og