Viðar - 01.01.1937, Page 118
FUNDARGERÐ
116
[Viðar
að samræma nemendafjölda hvers héraðsskóla við húsrúm, kennslu-
krafta og tekjuþarfir«.
XIV. Formaður félagsins, Kristinn Stefánsson, bar fram tillögu
um, að Jónas Jónsson skólastjóri yrði kjörinn heiðursfélagi félagsins,
í þakklætisskyni fyrir starf hans í þágu héraðsskólanna. Tillagan var
samþykkt í einu hljóði. — Eftir stutt hlé, sem varð þá á fundinum,
kom áðurnefndur heiðursfélagi sem gestur á fundinn.
XV. Útgáfa »Viðars<L var aftur tekin til umræðu. Nefndin í þvi
máli bar fram þessa tillögu, er var samþykkt:
»Fundurinn óskar eftir, að nemendasamböndin haldi áfram útgáfu
sameiginlegs ársrits og felur félagsstjórninni að stuðla að því í sam-
vinnu við nemendasamböndin«.
XVI. Jónas Jónsson gaf skýrslu itm menningarsjóð og fyrirætlanir
nefndar þeirrar, er ræður um útgáfur skólabóka og möguleika þá,
sem héraðsskólarnir hafa til að njóta góðs af skólabókalögunum.
XVII. Sönglagabók. — Þessi tillaga var samþykkt:
»Fundurinn æskir þess, að Þórður Kristleifsson kennari undirbúi,
svo sem hann telur þörf á og kleift er, útgáfu sönglagabókar fyrir
héraðsskólana. Einnig æskir fundurinn þess, að hann flytji útvarps-
erindi á vegum félags héraðs- og alþýðuskólakennara í þessu sam-
bandi.«
XVIII. Samrxmi í starfi héraðsskólanna. — Bjarni Bjarnason
flutti erindi um, að skólarnir samræmdu reglur sínar um skólaaldur
og hreinlæti í skólunum, skemmtanir, samlíf pilta og stúlkna í skól-
unum o. fl.
Samþykkt var þessi tillaga:
„Fundurinn skorar á alla forráðamenn héraðsskólanna að ganga
ríkt eftir því, að hver nemandi tryggi skólanum fyrirfram að haust-
inu til greiðslu á dvalarkostnaði vetrarins, annaðhvort með útlögðu
fé eða með tryggri ábyrgð«.
XIX. Stjórnarkosning. — Stjórn félagsins var endurkosin, þeir
Kristinn Stefánsson, Þórir Steinþórsson og Guðnumdur Úlafsson með
11 atkvæðtim hver og til vara Björn Guðmttndsson á Núpi.
XX. Sjúkrasamlög í skólum. — Leifur Ásgeirsson skýrði frá
sjúkrasamlagi í Laugaskóla og hvernig hin nýju lög um alþýðutrygg-
ingar hefði svipt slík samlög ríkissjóðsstyrk, er þau nutu áður. Bar
hann frant svohljóðandi tillögu, er var samþykkt í einu hljóði:
»Fttndurinn skorar á félagsstjórnina að beita sér fyrir því við Al-