Viðar - 01.01.1937, Síða 126
124
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
[Viðar
Yfirlit um framkvæmdir.
Eftir Aðalstein Eiríksson.
Árið 1933 var ákveðið á almennum hreppsfundum í Nauteyrar- og
Reykjarfjarðarhrcppi, að þessir tveir hreppar skyldu sameinast um
að byggja barnaskóla í Reykjanesi. Samið var við landeiganda —
ísafjarðarkaupstað — um lóð undir skólahúsið, 400 fermetra að stærð,
og við Isafjarðarkaupstað og Norður-ísafjarðarsýslu um afnot af
sundlaug og heimavist, er kaupstaðurinn og sýslan áttu, og var að-
eins notað til íþróttakennslu að sumrinu. Síðar leigði ísafjarðarbær
skólanum ræktunarland, að stærð 1,7 ha. Hefir forstöðumaður skól-
ans land þetta til afnota og annast ræktun þess. Um aðkallandi fram-
kvæmdir, land og hlunnindi til þeirra, vísast til starfsskrár. Sumarið
1934 er skólahúsið byggt. Það er einlyft steinhús, 192 fermetrar. 1 því
eru tvær skólastofur, sem gera má að einum sal, 4x12 metrar, ein lítil
kennslustofa, stór forstofa, skrifstofa og tveir salernis- og snyrtiklef-
ar. Ibúð skólastjóra er fimm herbergi, eldhús og bað. Sama ár eru
511 húsakynni í Reykjanesi raflýst, með mótor. Keypt voru til skólans
fjölbreytt áhöld.
Sumarið 1935 voru byggð útihús, að stærð 9x15 m. 1 því eru
geymslur, smíðahús og peningshús. Til smíðastofu voru keypt áhöld
fyrir um kr. 700.00.
Þá var heimavistin endurbætt, byggð borðstofa, sem rúmar 60
manns, forstofur með salernum og þvottaskálum í sambandi við svefn-
skála. Áður rúmaði heimavisitu 40 nemendur, en nú 60.
Sumarið 1936 var bátabryggja gerð. Nemendur skólans byggðu
Bátabryggjan á Reykjanesi,