Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 139
Viðar]
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
137
óblandin ánægja að hitta börnin. Þau eru glöð, kát og
frjálsleg í allri framkomu, og sýna, að þau hafa eignast
þar gott heimili.
Heimilin treystu því skólanum fyllilega og á milli
þeirra og skólans er hið ákjósanlegasta samstarf.
Einn merkilegur þáttur í starfi Reykjanesskólans er
nám barnanna heima, þann tíma sem þau dvelja ekki í
skólanum. Þessu hefir þannig verið hagað, að þegar börn-
in koma heim um miðjan veturinn, hafa þau með sér
námsverkefni er þau eiga að fara eftir. Með þeim fylgir
hvatning til hvers heimilis frá skólastjóra um, að heimilin
leggi fram sitt til, að börnin geti innt af hendi sem þeim
er ætlað. Þetta virðist hafa gefizt prýðilega og hefir sýnt
sig, að heimilin hafa lagt mikið á sig til þess að heimanám
barnanna bæri árangur.
Á engan hátt annan er betur hægt að koma heimilun-
um í sambandi við skólann, en að leggja sitt lið til starfs-
ins, sem þar fer fram.
Um eitt skeið vildi bera talsvert á því, að heimilin
ræktu lítt barnakennsluna heima. Þá ríkti sá hugs-
unarháttur, að það væru skólarnir, sem ættu að sjá um
kennsluna. Þettá er mesti misskilningur, heimilin verða
alltaf að byrja, þau verða að leggja undirstöðuna að nám-
inu og því fyrr sem þau byrja það starf, því betur eru
börnin búin undir námið í skólanum.
Reykjanesskóli vill starfa með heimilunum að þessu.
Hann hvetur heimilin til að starfa með skólanum eftir að
börnin eru farin að dvelja þar. Þessu samstarfi hafa
heimilin tekið vel. Þau hafa sýnt skilning á starfi skólans
og vilja styðja hann eftir mætti.
Takist Reykjanesskóla eftirleiðis að vinna með heimil-
unum í góðu samstarfi að þessum málum, þá mun honum
vel vegna og njóta verðskuldaðs trausts frá öllum aðil-
um, sem að honum standa.