Viðar - 01.01.1937, Page 141
Viðar]
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
139
notuðu námskeiðsgestir hina ágæu sundlaug skólans og
jók það mjög á ánægju þessara daga. Þótti námskeiðið
hafa tekizt mjög vel, og fóru menn mjög ánægðir heim,
eftir að hafa hlýtt á ágæta fyrirlesara, er fluttu
með sér ýmsa fræðslu, sem að haldi kemur, og ýmsar
nýjungar í búnaðarháttum. Á skólinn hinar beztu þakkir
fyrir að hafa komið þessu námskeiði á.
Eins og kunnugt er, er slíkt námskeiðshald sem þetta
einn þáttur í starfsskrá Reykjanesskólans og má ætla, að
þau verði haldin alltaf við og við eftirleiðis, og er slíkt
allmerkilegur þáttur í starfi skólans, er styður að auk-
inni fræðslu sveitafólksins hvað búnaðarfræðsluna snert-
ir. Mun skóli þessi vera brautryðjandi annara skóla í
því að taka á starfsskrá sína sem einn þátt skólafræðsl-
unnar ýms hagnýt atriði, er beint er sérstaklega til sveit-
anna, og þess fólks, sem þar lifir. Enda er núverandi
forstöðumaður skólans mjög áhugasamur um fræðslumál
yfirleitt, og hefir lagt til þeirra ýms merkileg atriði, sem
vænta má hins bezta af í framtíðinni.
Búnaðarnámskeiðin hafa frá fyrstu tíð notið hinna
mestu vinsælda, enda er reynsla fengin fyrir því, að sé
til þeirra vandað, hafa þau varanleg áhrif til hvatningar
í ýmsum búnaðarháttum. Þau sækir sá hluti sveitafólks-
ins, sem eigi hefir á annan hátt tækifæri til þess að lyfta
sér upp frá daglegu störfunum, og það eitt, „að lyfta sér
upp“, hefir alltaf sína þýðingu.