Viðar - 01.01.1937, Page 142
140
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
[Viðar
Vorvika Reykjanesskóla 1935.
Eftir Ingibjörgu Hákonardóttur.
Dögunum 12.—20. júní 1935 gleymi ég seint. Þá veittist
mér sú ánœgja að dvelja á hinni fyrstu Vorviku kvenna,
er haldin var í Reykjanesskóla,- — Er það einhver sá
skemmilegasti tími, sem ég
hefi lifað síðustu tuttugu ár.
Á vikunni voru giftar og
ógiftar konur, flestar úr
Reykjarfjarðar- og Nauteyr-
arhreppi, 3 frá Isafirði og ég
undirrituð úr Barðastrandar-
sýslu. Lengst af voru kon-
urnar 29, en flestar urðu þær
35. —
Það er áreiðanlega ánægju-
legt að geta árlega haft viku-
tíma (þótt ekki væri meira),
svipaða þessari viku. Kon-
urnar voru svo glaðar og
frjálsar, lausar við áhyggjur
heimila sinna, en litu á
þennan dvalarstað sinn sem nýtt heimili, þar sem allir
voru sameinaðir í friði og kærleika. Konurnar voru svo
samhentar, að það var aðdáunarvert.
Skólastjóri og frú hans gerðu allt, sem þau gátu, til
að gera okkur veruna sem ánægjulegasta.
Hann hélt oft tölur undir drykkjuborðum, lék fyrir
okkur á hljóðfæri, og voru þau hjón með okkur, af og
til, annað eða bæði. Oft var fjöldi gesta í mat og kaffi.
Einn þeirra gesta var frk. Halldóra Bjarnadóttir. Var hún
stödd á Reykjanesi til að skoða hinn nýstofnaða -skóla.
Hafði hún sýningu á nokkrum munum, mest úr íslenzk-
um efnum. Einn fyrirlestur flutti hún. Allar konurnar
voru mjög hrifnar af návist hennar,
Ingibjörg Hákonardóttir.