Viðar - 01.01.1937, Page 146
144 REYKJANESSKÓLI 1934—1937 [Viðar
unnið við bryggjuna öllum frístundum og þriðja daginn
fengu nemendur leyfi tii þess, að vakna kl. 5 til vinnunn-
ar, svo verkinu yrði lokið að mestu áður en þeir færu
heim, því próf átti að hefjast næsta dag. Þetta tókst.
Uppfyllingin var komin það áleiðis, að stór bót var að
Leitað var til yfirstandandi alþingis um styrk til bryggju-
gerðar í Reykjanesi. Var beiðninni tekið mjög vinsam-
lega og veittur 1000.00 kr. styrkur. Var þeim varið til
þess, að byggja 12 m. langa trébryggju fram af stein-
bryggjunni. Hinar vinsamlegu undirtektir fjárveitinga-
nefndar byggðust fyrst og fremst á því, hvernig til þessa
verks var stofnað, og lét formaður nefndarinnar svo um
mælt: „Það er ekki hægt að synja þessari fjárbeiðni, því
það væri að slá á útrétta og vinnufúsa hönd æskumanns-
ins“. Bryggjan er skólanum afar mikils virði sem sam-
göngubót, og sem tákn um mátt félagslegra aðgerða er
hún ómetanleg.
Veturinn 1936 var rætt um það í málfundafélagi skól-
ans, hvernig skólinn gæti öðlast betri skilyrði til útií-
þrótta að vetrarlagi. Komu fram raddir um að nauðsyn-
legt væri að koma upp skíðaskála austan ísafjarðar, því
að þar er skíðaland gott, en vegna fjarlægðar frá skólan-
um væri brýn þörf að eiga þar skýli. Einn nemandi, Jó-
hannes Jakobsson frá Reykjarfirði á Ströndum, bauðst til
að gefa alla máttarviðu í skálann. Samþykkt var að
reisa skálánn, þiggja hið rausnarlega boð Jóhannesar,
byggja veggi skálans úr torfi og grjóti í þegnskapar-
vinnu, en afla fjár upp í annan kostnað, á þann hátt, að
nemendur ræktuðu kartöflur og aðra garðávexti og
verðu nokkrum hluta ágóðans af garðræktinni, allt að
10 kr. hver, í skíðaskálasjóð. Haustið 1936 var byrjað á
veggjum skálans og grindin reist, og nú hafa sjómenn,
sem hér eru við sundnám, ákveðið að ljúka við að byggja
veggina. Komið hafa í skíðaskálasjóð 190.00 kr., sem að
mestu er ágóði af garðrækt nemenda. Að öllu forfalla-
lausu verður skálinn kominn það áleiðis í haust, að hægt