Viðar - 01.01.1937, Page 163
Viðar]
FYRIRLESTUR
Í6Í
nota þá þannig, að fólkið verði heimskara eftir en áður.
Það er líka hægt að nota kvikmyndir og útvarp til þess
að sá hatri og úlfúð þjóða í milli.
í þessu umhverfi lifir æskan.
Léttir þessari „kreppu“ eins og hinni efnislegu? Eða
berumst við lengra og lengra inn í öngþveitið? Það fer
eftir því, að mínum dómi, hvort þau lífsverðmæti eða sú
lífsskoðun, sem byggð er á kristinni trú og mannkærleika
reynist nógu lífsmögnuð eða ekki.
Hér er ekki átt við sérstakar kennisetningar hinnar
kristnu kirkju. Þær eru bundnar við stað og stund. —
Hér er átt við innsta kjarna kristindómsins, lífsskoðun
hans og siðgæðishugsjón. Hér er átt við kenninguna um
hið eilífa gildi manneðlisins og bræðralagshugsjón mann-
anna. Hér er átt við frelsið og ábyrgðartilfinninguna, sem
eitt getur sameinað andstæðurnar.
Ef til vill verður mannkynið að komast enn lengra nið-
ur í ljónagröfina, til þess að læra að skilja réttilega, hve
vonlaus kenningin er um yfirráðarétt hins sterkara.
Ein meginástæðan til þess, að hin kristna lífsskoðun
hefur tapað tökunum er án efa sú, að hinir opinberu tals-
menn þessarar lífsskoðunar hafa svo oft misskilið eða
svikizt undan köllun sinni. Það er ekki nema gott um það
að segja, að samtíð okkar gerir upp reikningana við
ósannar og hræsnisfullar stefnur. Við skulum ekki kasta
hnútum að æskunni fyrir það, að hún leitast við að vera
hreinskilin.
Æskan ólgar af lífi og krafti. Hún vill fá að vera
með í því að gera eitthvað, skapa eitthvað stórt og glæsi-
legt. Það er okkar hlutverk að gefa æskunni verkefni og
skapa hjá henni nýjan áhuga fyrir framkvæmd óleystra
verkefna og heilbrigða lífsgleði í þjóðnýtu starfi.
Guöm. Gíslason þýddi lauslega.
11