Viðar - 01.01.1937, Page 169
Viðar]
ÆSKA OG MENNING
167
ekki hnepptir í andlega fjötra. Með aukinni menntun
vex félagshyggjan og félagsþroskinn, ef vel er á haldið.
Það er því engin tilviljun, að í skólunum hafa sprottið
upp félagshreyfingar, sem vilja í félagslegu samstarfi
við kennara og skóla, vinna að almennum menningar-
málum. Ég minni á „Bindindisfélög í skólum“ og „Vöku-
menn íslands“. Bindindisfélögin vilja vinna að bindindi.
Þau vilja færa út í lífið eina af meginreglum góðs skóla.
Einstaklingarnir í nemendahópnum taka höndum saman
við kennara sína um þetta mikla menningarmál og leita
styrktar í samstarfi. Með félagssamtökum sínum styrkja
þeir skóla sinn, vinna þjóð sinni gagn og þroska sjálfa
sig á viðfangsefninu.
Vökumenn íslands (V. í.) er hliðstæð félagsstofnun.
Hún er til orðin fyrir atbeina áhugasamra nemenda í hér-
aðsskólunum og öðrum framhaldsskólum og nokkurra
kennara, sern rétt hafa þessari ungu félagsstofnun hönd
sína.
„Hugsjón V. í. er að stofna og efla samfellda félags-
heild í skólum landsins til eflingar alhliða menningu í
landinu. (Sm.br. 2. gr. starfsskrárinnar). Þeir stefna að
því að sameina æskufólk í öllum skólum landsins um það
að standa þétt saman um skólana og heilbrigðar kröfur
til þeirra, og að vinna áfram í anda þeirra hugsjóna, sem
góður skóli er reistur á. V. í. vilja efla og auka félagslífið
í skólunum. Þeir vilja mynda trausta fylkingu áhuga-
samra nemenda, flokk, sem skólinn má reiða sig á —
einskonar skátaflokk, — sem vill vinna skólanum hvert
það gagn, er hann má og vekja áhuga og skilning skóla-
systkina sinna fyrir starfsömu, heilbrigðu og háttprúðu
menningarlífi í skólanum — og fyrir því að beita þessum
eiginleikum í lífi sínu síðar.
Landssamband Vökumanna, sem stofnað var á Þing-
völlum s.l. vor, er sveit ungra manna og kvenna um land
allt, sem notið hafa kennslu í héraðsskólum eða öðrum
skólum, sem nú bindast samökum um það að sýna dugn-