Viðar - 01.01.1937, Page 173
Viðar] LANDSSAMBAND VÖKUMANNA STOFNAÐ
171
Páll Sigurðsson frá Hólum í Hjaltadal.
Karl J. Magnússon frá Laugarvatni.
Atli Guðmundsson frá Þingvöllum.
Vilhjálmur B. Þorláksson frá Reykjavík.
Hlíf Böðvarsdóttir frá Laugarvatni.
Eftir að búið var að skipa í nefndir, fluttu þeir sitt er-
indið hvor, þeir Kristinn Stefánsson og Jónas Jónsson.
Kristinn Stefánsson talaði um tilgang Vökumannasam-
takanna. Taldi hann þau beint framhald af félagssamtökum
frelsisbaráttu fyrri tíma; V. í. vildi berjast fyrir meiri
skilningi á lýðræði og samhjálp mannanna, samkv. kjör-
orði sínu; þeir vildu berjast á móti öllum öfgum og
gervimennsku í þjóðlífinu.
Jónas Jónsson rakti viðhorf fyrstu ungmennafélaganna
og hvernig þau áttu beinan þátt í stofnun héraðsskól-
anna. Talaði ræðum. síðan um það, að ungmennafélögin
hefðu ekki náð tökum á skólunum, en þar sem þeir væru
að verða einn veigamesti þátturinn í uppeldi íslenzkrar
æsku, skildu kennarar og nemendur þörfina á samein-
andi félagsskap í skólum landsins. Þess vegna væri starf-
svið Vökumanna fyrst og fremst í skólunum.
Var nú fundi frestað og staðurinn skoðaður. Kl. 6V2
hófst fundur að nýju og úr því skiptust á umræður,
nefndarstörf og dans til sólaruppkomu. Hafði þá verið
gengið frá stefnuskrá, skipulagsreglum og starfsskrá, eins
og þær birtast hér á eftir.
Þá hafði fundurinn samþykkt að gera fánasöng Einars
Benediktssonar að félagssöng sínum og að fáni Vöku-
manna skyldi vera hinn gamli, bláhvíti, íslenzki fáni —
Hvítbláinn. — Merkið var einnig ákveðið og hefur Rík-
arður Jónsson listamaður gert teikningu að því.
Rætt var um, að næsta landsmót yrði haldið að Lauga-
skóla og farnar ferðir þaðan um Þingeyjarsýslu, t. d. að
Goðafossi og Mývatni.