Viðar - 01.01.1937, Side 175
Viðar] STEFNUSKRÁ VÖKUMANNA Í73
2. Vökumenn vilja vernda íslenzkt þjóðerni og tungu og viðhalda
menningarlegu sambandi við Islendinga erlendis.
3. Vökumenn vilja stuðla að og taka þátt í náinni samvinnu við
frændþjóðirnar á Norðurlöndum til eflingar norrænni menningu
°g tryggingar jafnrétti og lýðfrelsi.
4. Vökumenn beita sér fyrir því, að náttúrugæði landsins verði
rannsökuð og hagnýtt sem bezt í samræmi við vísindalega þekk-
ingu nútímans, íslenzka staðhætti og þjóðareðli, og leggja allt
kapp á, að landsmenn noti sem mest innlenda framleiðslu.
5. Vökumenn vilja beita sér af alhug fyrir eflingu lýðræðis og þing-
ræðis í landinu og vinna á móti þjóðfélagslegum hyltingum og
ofbeldi, en kappkosta að beita drengskap og rökum í öllum
málaflutningi.
6. Vökumenn vilja leitast við að sýna áhuga og starfsþrek í hví-
vetna og leggja ríka áherzlu á frjáls samtök og samvinnu í at-
vinnumálum landsmanna, en gera hins vegar kröfu til, að þjóð-
félagið geri það sem unnt er til þess, að æskulýður landsins, kon-
ur og karlar, eigi ávallt kost á sjálfstæðri þátttöku í fram-
leiðslustörfum þjóðarinnar.
7. Vökumenn vilja beita sér fyrir því, að unga fólkið geti myndað
sér sjálfstæð heimili, og styrkja hverskonar viðleitni til að fegra
þau og prýða.
8. Vökumenn vilja vinna að jöfnuði á lifskjörum fólksins í landinu,
en sporna við öllu óhófi í lifnaðarháttum, sérstaklega ofdrykkju
og gera í þeim efnum strangar kröfur til félagsmanna.
9. Vökumenn vilja efla þá skóla í landinu, sem starfa á frjálsmann-
legan hátt að hagnýtri kennslu í verklegum og bóklegum grein-
um, efla félagslegan starfsþroska nemendanna og leggja mikla
áherzlu á heilbrigt og þróttmikið íþróttalif.
10. Vökumenn vilja vinna í nánu samstarfi og vinsemd við bindind-
isfélögin og ungmennafélögin í landinu.
Starfsskrá Vökumanna.
1. gr. — öll starfsemi Vökumanna skal ætíð hvíla á grundvelli lýð-
ræðis og samvinnu.
2. gr. — Hugsjón Vökumanna er að stofna og efla samfellda fé-
lagsheild í skólum landsins og út frá þeim til eflingar alhliða menn-
ingu í landinu, svo sem samstarfskennd, hófsemi, þjóðrækni og lýð-
ræði í öllum greinum, eins og Vökumenn hafa sett frani í stefnuskrá
sinni.