Viðar - 01.01.1937, Page 188
186
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðar
Hver nemandi nýtur daglega kennslu í fimleikum og sundi. Þannig
mun þetta vera í öllum héraðsskólunum, enda eru þeir brautryðjend-
ur á þessu sviði hér á Iandi. Bæjaskólunum hygg ég, að sækist seint
róðurinn í þessu efni.
Skiðafæri var óvenju gott í vetur. Við ættum að vera ósparir á
það að veita aukatíma til útivistar, séu þær stundir, sem beinlínis
eru ætlaðar daglega i þessu augnamiði, fullnotaðar. En því fer fjarri,
að svo sé, hér á Laugarvatni að minnsta kosti. Snjórinn og ísinn eru
þó líklegustu hjálparmeðulin í baráttunni við það, að koma fólkinu
út úr húsunum, sé það tryggt, að töluvert sé til af skíðum og hver
maður eigi skauta, ef nokkur von er um skautaís. Skólinn á 40 pör af
skíðum, en skauta er hverjum nemanda gert að skyldu að hafa með
sér.
Knattleikur á ís (Is-hockey).
Þessi knattleikur er í höfuðreglum svipaður knattspyrnu. 1
hvoru liði eru 7—11 þátttakendur. Stærsti völlur 110^90 m., minnsti
völlur 60^45 m.. Hæð marksúlna 2,1 fjarlægð þeirra 3,5 m. Knött-
urinn á að vera óholur 6—7 cm. í þvermál. Notuð eru knatttré með
beygju á öðrum enda, þau mega ekki vera yfir 120 cm. á lengd að
beygjunni meðtalinni. Leikurinn fer fram á ísfleti, þessvegna eru
þátttakendur allir á skautum. Leikur þessi er eitthvert glæsilegasta
útisport, sem um getur. Kostir þessa knattleiks eru meðal annars
þeir, að hann þénar jafnt ungum sem gömlum, konum sem körlum.
Tvo síðustu vetur hefir þessi leikur verið allmikið æfður hér.