Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 190
188
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðar
Dr. Höjgaard Christensen, nmsjónarmanns menntaskólanna í Dan-
mörku. Fundinn sóttu 40—50 kennarar frá ýmsurn skólurn. Loks
var prestafundur fyrstu daga septembermánaðar.
Snjall sundmaður.
Guðjón Ingimundarson lauk íþrótta-
kennaraprófi í vor. Hann var áður
nemandi í Reykholti. i júní s. 1. tók
liann þátt í sundmóti í Sundhöllinni í
Reykjavík. Hann synti 50 st. á 30,1
sek., var það nýtt met. Vafasamt er,
hvort metið fæst viðurkennt. Ég hefi
haldið því frarn opinberlega, að viss-
ara væri að gæta réttar slyngra í-
þróttamanna utan af landi í keppni
móti Reykvíkingum. Quðjón er ráð-
inn aðstoðarkennari í íþróttunr í
Laugarvatnsskóla komandi vetur.
Bjarni Bjarnason.
Laugaskóli.
Skólaárið 1936—37.
Skólasetning fór fram 12. október, svo sem til hafði staðið. Ávörp-
uðu Konráð Erlendsson og skólastjóri nemendur. Nokkrir væntanlegir
nemendur voru þá enn ókomnir, en konni flestir skömnni síðar.
Nemendur.
Reglulegir nemendur voru 67, fáeinir þó ekki allan námstímann.
Þeir skiptust þannig eftir deildum: Yngri deild (y. d.) 33, eldri deild
(e. d.) 20, smíðadeild (smd.) 14. Til smíðadeildar eru hér taldir allir
nemendur, er höfðu sérnám í smíðurn; annað nám sitt stunduðu þeir
eftir atvikum með y. d. eða e. d. — Nokkrir aðrir nemendur voru
skemmri tíma á skólanum við reglulegt eða óreglulegt nám. Náms-
meyjar úr Húsmæðraskólanum sóttu tíma í söng og fengu sérkennslu
í sundi.
Stjórn skólans og starfslið.
Skólaráð skipuðu Þórólfur Sigurðsson, Baldursheimi (formaður),
Kristján Sigurðsson, Halldórsstöðum (féhirðir), Ketill Indriðason,
Ytra-Fjalli, Þorgeir Jakobsson, Brúum og Páll H. Jónsson, Laugum,