Viðar - 01.01.1937, Qupperneq 195
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M.
193
Undir bæði prófin gengu allir nemendur, er eigi höfðu eða höfðu
haft sérstök foríöll vegna veikinda eða annarra óhappa.
Skólalíf.
Skólareglur og skipulag var mjög hið sama og í fyrra.
»Laugamannafélagið« starfaði með svipuðu móti og þá, undir for-
mennsku Páls H. Jónssonar kennara. Þá var og stofnað félag um
tóbaksbindindi, og mun sú hreyfing hafa gert nokkurt gagn. —
»Norrænt kveld« 27. október, fyrirlagt af fræðslumálastjóra, og
1. desember var haldið hátíðlegt þannig, að sem minnst bæri á blæ
tíðkanlegs skemmtanaglaums.
í útivist (1 st. daglega) iðkuðu piltar að venju mest knattspyrnu;
stúlkur fengust við »hockey« fyrst framan af, en of brátt tók fyrir
það vegna snjóalaga. Bændaglíma fór fram 1. des., við talsverða
þátttöku, og hafði glíma verið æfð nokkuð áður í því tilefni, en síðan
féll það niður.
Almenn samkoma, er boðuð hafði verið í skólanum 20. nrarz, varð
að íalla niður vegna inflúenzufaraldurs, er kominn var í héraðið.
Af skemmtiferðum var sú helzt og mest, er farin var í Mývatns-
sveit seint í nóvember. Voru helztu áfangastaðir Dimmuborgir og
Reykjahlíð. Höfðu Reykhlíðingar boðið hópnum heim, og voru við-
tökur þar hinar ágætustu.
Aðrar lengri ferðir, er ráðgerðar höfðu verið, urðu ekki farnar,
ýmissa ástæðna vegna. Var mest eftirsjá að för til Akureyrar, er
Laugamenn höfðu haft mikinn hug á að fara, til að kynnast ýmsum
merkum stofnunum þar og bænum og umhverfi hans yfirleitt. Hafði
Kaupfélag Eyfirðinga heitið fyrirgreiðslu sinni. Þá vildi og svo vel
til, að hingað komu tveir hópar frá Menntaskólanum á Akureyri, i
lok nóvembermánaðar. Var sá fyrri knattspyrnuflokkur, gisti hér um
nótt og þreytti næsta dag knattspyrnu við nemendur hér og héðan.
Hinn hópurinn kom og til gistingar, að kveldi þessa dags, en var
boðaður aftur um hæl af útgerð bifreiðanna, vegna fannhlaðs og
væntanlegrar ófærðar. Svo leið sem þau málalok voru, var Lauga-
mönnum mikil ánægja að komu Menntaskólamanna, er aftur gerðu
hinum heimboð, og var það fast ítrekað af Sigurði Quðmundssyni
skólameistara. Var sú Akureyrarför orðin enn miklu fýsilegri, en
tvennt varð til hindrunar: Bifreiðafæri spilltist endanlega, og á Ak-
ureyri gengu mislingar, og var sú ástæðan þyngri á metunum, þvi að
% skólafólks var undir mislingum. Misstist þannig mikilsvert tæki-
færi.
Eiginlegar farsóttir komu engar. Nokkrir urðu þó misbrestir á
æskilegu heilsufari. Sjúkrasamlag skólans fékkst nú eigi löggilt af
sjórnarráðinu, og var borið við alþýðutryggingalögunum. Með hækk-
13