Viðar - 01.01.1937, Page 207
Viðar] UTDRATTUR UR SKOLASKYRSLUM M. M. 205
og liélzt fram að jólum. f marz barst svo kvefpestin (inflúenzan.) í
skólann og sýkti flesta nemendur. Varð að láta kennslu falla niður
um viku tíma. Vegna kvefpestarinnar fórst fyrir útvarp frá skólanum.
Námsskeið í fimleikum og sundi voru haldin frá því skóla lauk 14.
apríl og til 18. júní. Alls sóttu námsskeiðin 157 börn og unglingar.
Kennari var Þorgils Quðmundsson. Á II. fimleikamóti Islands, sem
haldið var í Reykjavík í maí, sýndu 12 piltar frá skólanum undir
stjórn kennarans.
Umbætur og framkvæmdir. Neyzluvatn og kalt vatn í sundlaug
skólans hafði jafnan verið af skornum skammti og bagalega lítið,
þegar þurrkar gengu um tíma. Fyrir því var sl. vor ráðist í að gera
nýtt vatnsból, svo að nú eru vatnsbólin tvö. Var þetta allmikið verk
og dýrt. Á þessu vori var lagður nýr vegur af þjóðveginum og heim
í hlað. Er þessi nýja heimreið um 130 m. löng og 4 m. á breidd. —
Nokkuð var lagfært í skólanum í vor, íbúðarherbergi veggfóðruð eða
máluð o. fl.
Nú starfar hér gistihús og rekur frú Theodóra Sveinsdóttir það.
Kristinn Stefánsson.
Stutt skýrsla
um starfsemi Reykjaskóla skólaárið 1936—1937.
(Eftir heimild ]óns Sigurðssonar, fyrrverandi skólastjóra).
Skólinn var settur fyrsta vetrardag (24. okt.) að viðstöddum
flestum nemendum og kennurum. Viðstaddir voru og fjöldi gesta úr
næriiggjandi sveitum.
Þessir voru kennarar:
Jón Sigurðsson frá Yztafelli, skólastjóri.
Hann kenndi: fsl. e. d. 6 stundir, dýrafr. 2 st., mannk.s. 2 st.,
landafr. 5 st. (báðum deildum), grasafr. y. d. 3 st., þjóðfélags-
fræði 2 st. (ein st. hvorri deild). Alls kenndi skólastj. 20 st. á
viku.
Sr. Jón Guðnason frá Prestbakka.
Hann kenndi: Dönsku e. d. 3 st., eðlisfræði e. d. 2 st., reikning
e. d. 4 st., fslandssögu (báðum deildum) 4 st., íslenzku y. d. 5
st., ensku e. d. 3 st. — Samtals 27 stundir.
Ellert Finnbogason frá Sauðafelli.
Hann kenndi: Reikning y. d. 5 st., heilsufræði y. d. 1 st., alla
leikfimi 12 st., sund 3 st. AIls 21 st.
Sigurður Egilsson frá Laxamýri.
Hann kenndi: Dönsku y. d. 3 st., smíði 12 st. Alls 15 st,