Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 16
16
NORÐURLJOSIÐ
ljú'ffengt.“ (Lúk. 5. 39.). Ég hafði drukkið í mig tvær meginkenn-
ingar heilagrar ritningar. Onnur er sú, að hún er Guðs orð. Hin er
jiessi: Jesús er sonur Guðs, sonur Guðs á þann hátt, sem ekki verð-
ur sagt um nokkurn annan en hann. Ég hafði lesið talsvlert ritning-
una um nokkurra ára skeið. Ég hafði lesið sex fyrstu árganga Norð-
urljóssins. Ég hafði lesið bók eftir dr. R. A. Torrey: „Kristur, biblí-
an og vantrúin.“ Af þessu leiddi, að eitthvað hafði loðað í mér, þótt
ekki væri það mikið. En Andi Guðs í hjarta mér hefir áreiðanlega
oft hjálpað mér og minnt mig á það, sem ég átti að segja.
Fara verður fljótt yfir sögu. Veturinn leið, og vora tók, þótt ekki
væru komin sumarmál. Prófin voru í nánd, en upplestrarfrí kom á
undan þeim.
Þá bar svo til einn dag, að skólastjóri tilikynnti okkur, að í dag
skyldum við öll eiga frí. Hann ætlaði að taka okkur öll með sér á
göngu. Þetta átti að vera okkur til hvíldar og búa okkur þannig
undir prófin.
Þessu fögnuðu flestir nema ég. Mér voru þeltj.i vondar fréttir. Ég
ákvað að vejra kyrr í skólanum, en taka þennan dag til að reyna að
læra meir en einhvern graut í grasafræðinni. Ekki man ég, hvort
það var Geir Gígja, sem varð eftir með mér. Hófumst við þegar
handa. Sóttum við allar þær myndir, sem notaðar höfðu verið við
kennsluna um veturinn. Hófum við svo að lesa Plönturnar og hárum
allt hið lesna saman við myndirnar. Gerðist þá það, er mér þótti tíð-
indum sæta: Grpsafræðin laukst upp fyrir mér. Ég skildi allt hið
lesna, reyndi að hugfesta það vel og tókst það. Varð blessaður
doktorinn því ekki fyrir vonbrigðum með mig á vorprófinu.
Vorpróifi fékk eg að ljúka ásamt fleiri nemendum í fyrra lagi.
Astæða þess var sú, að Esja var að leggja af stað í hringferð vest-
ur og norður um land. Meðal þeirra, sem fóru jneð Esju, var Böðvar
Pétursson. Hann er bróðir Ingveldar, sem gíft er Konráði bróður
mínum. Vildi hann heimsækja systur sína og mág. Þau bjuggu á
Miðjanesi. Er sá bær á Reykjanesii við norðanverðan Breiðafjörð.
Næsta höfn, við Miðjanes, sem Esja kæmi á, yar Hólmavík. Maður
úr Reykhólasveit var og á skipinu, og urðum við þrír samferða og
einhverjfr fleiri. Gengum við skemmstu leið yfir fjöll og á ísi yfir
Berufjörð. Dvaldi ég slkamma hríð á Miðjanesi, en fór svo þaðan
gangandi heim að Finnmörk. Mun það hafa tekið mig þrjá daga eða
fjóra, því að ég varð að ganga inn á Borðeyri. En þangað fékk ég