Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 57
NORÐURLJÓSIÐ
57
„Viltu geyma fyrir mig þetta silfur mitt?44
Þannig mælti maður nokkur í ísrael við nágranna sinn.
„Ég þarf að fara í ferðalag, en hefi engan öruggan stað, þar sem
ég get geymt það.“
Granninn gaf honum loforð upp á æru og trú, að hann skyldi
geyma fé hans.
No'kkrar vikur liðu eða mánuðir. Maðurinn kom heim aftur og
gekk til granna síns til að sækja silfur sitt.
„Hvað, ég hefi ekki tekið við neinu silfri af þér til geymslu,“
mælti hann og þrætti fyrir með öllu, að granni hans ætti nokkuð
geymt ihjá honum. Þar sem engir vottar voru viðstaddir, þegar silfr-
ið var afhent, gat hinn ekki sannað kröfu sína og varð að snúa
tómhentur heim.
Nokkur tími leið. Þá kom hátíð, og allir fullorðnir karlmenn
urðu að fara upp til Jerúsalem. Það var boðið í lögmáli Drottins,
að löghátíðir Drottins yrðu allir karlmenn að sækja.
Meðan stóð yfir hátíðin, var lesið úr lögmálsbók Drottins. Radd-
sterkur maður las upp hátt og snjallt, svo að allir gætu heyrt boð
Drottins.
Allt í einu hrökk maðurinn við. Með áður honum óþekktum
krafti hljómaði boðið í eyrum hans: „Þú skalt ekki stela.“
Samvizkan vaktiaði. Þetta hafði hann gert. Hann hafði stolið þvt
fé, sem honum var trúað fyrir, og þrætt fyrir verknaðinn. Hann var
sekur orðinn við boð Drottins.
Þegar lokið var upplestri lögmálsins, gekk hann til eins prests-
ins, sem nærstaddur var, og bað hann að tala við sig. Þeir viku sér
vitund afsíðis, og maðurinn sagði frá, hvað hafði hent sig. Mundi
hann ekki þurfa að færa Drottni fórn til að fá synd sína fyrirgefna?
Prestur sagði honum, að fyrr en fórn væri færð, yrði hann að
skila aftur silfrinu og gjalda manninum fimmtungi meiri upphæð
en sú var, sem hann stal og þrætti fyrir. Þannig væri boð Drottins.
En er þetta hefði verið gert, yrði hann að færa Drottni gallalausan
ihrút úr hjörðinni sem sektarbætur fyrir að hafa brotið boð hans.
Samvizkan gaf liinum seka engan frið. „Þú ert sekur orðinn við
Drottin,“ klagaði hún. Hann ákvað því að létta byrðinni af sér og
fara eftir fyrirmælum lögmálsins.