Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 131
NORÐURLJ OSIÐ
131
Ef ég í sannleika elska Jesúm Krist Drottin minn, mun ég hugsa
um hann. Sá hlutur eða sú manneskja, sem við hugsum mest um,
er það, sem við berum fyrir mesta umhyggju.
Hugsaðu um hann.
Hugsanir okkar hafa mörgu að sinna, námi, framtíðarvonum, og
fjölskyldumálum okkar. Samt verða andartaks hlé oft á dag. Hvað
gera hjarta mitt og hugur, þegar þau eru laus við skyldustörf sín?
Hvarfla þau nálega sjálfkrafa til frelsarans? Hvað gerist á morgn-
ana, þegar ég vakna? Er hjarta mínu eðlilegt að lyfta sér til Guðs
með þakkargerð og lofgerð? Eða hugsa ég fyrst um mig? Ef næði
gefst eða stuttar tómstundir, sný ég mér þá að Drottni?
Lestu um hann.
Ef ég elska Drottin Jesúm Krist, mun ég elska að lesa um hann.
Hvar les ég um hann nema í biblíunni? Kristur er meginefni heil-
agrar ritningar. Biblían hefir það hlutverk, að birta Krist. Kem ég
auga á Krist í ritningunum? Nærist ég á honum fyrir trú með hjálp
heilags Anda, er ég les orð Guðs?
Mörgum er biblían dauf, leiðinleg og ekkert áhugaefni. Þangað
til logi kærleika Krists hefir verið kveiktur í hjörtum vorum, svo
að vér höfum farið að elska þann, sem er efni biblíunnar, höfum.
vér lítinn áhuga eða löngun til að lesa heilagar ritningar.
Hlýddu honum.
Ef ég í sannleika elska Krist, mun mig langa til að hlýðnast hon-
um. Hann sagði: „Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín.“
Hann sagði einnig: „Sá sem hefir mín boðorð og heldur þau, hann
er sá, sem elskar mig. En sá, sem elskar mig, mun verða elskaður af
Föður mínum, og ég mun elska hann og sjálfur birtast honum ....
Hver, sem elskar mig, mun varðveita mitt orð, og Faðir minn mun
elska hann, og til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá
honum.“ (Jóh. 14.21, 23.) Elskan er rót hlýðninnar. Hlýðnin er á-
vöxtur kærleikans. Ef Kristur er frelsari minn, þá er hann líka
Drottinn minn, Meistari minn og konungur minn. Honum ber mér
fyrst og fremst að sýna hollustu, hlýðni mína allra mest. Mitt allra
helzta áhugamál um dagana ætti að vera að þekkja vilja Guðs og
gera hann.