Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 162
162
NORÐURLJ ÓSIÐ
Skyggnzt inn í fortíðarheim
Eftir ritstjórann.
Eins og kunnugt er var Salómó konungur vitrasti maður veraldar,
þegar hann var uppi. Samt hefir mér orðið það stundum á, að efast
um réttmæti þeirra orða hans, sem nú skal greina:
„Sé nokkuð til, sem um verði sagt: sjá, þetta er nýtt — þá hefir
það orðið fyjir löngu á tímum, sem á undan oss voru.“ (Préd. 1.
10.)
Margir hafa sezt á þann háa hest, að gagnrýna biblíuna, frásagn-
ir hennar og kenningar, en hafa síðan dottið af baki honum, þegar
bráðlifandi staðreyndir skóku hann og hristu. Ég er í hópi þeirra
nú, sem fallið hafa ofan af háa hestinum, síðan ég las greinaflokk í
danska heimilisblaðinu „Familie Journal.“ Vel má vera, að þegar
sé búið að birta þetta á íslenzku. En ég ætla samt að nefna hér fá-
ein atriði.
Greinarhöfundur heldur því fram og leiðir að því býsna gild rök,
að kynslóð okkar sé ekki hin fyrsta á jörðinni, sem þekkt hafi raf-
magn, flugvélar og jafnvel kjarnorkusprengjur.
Hann bendir á, að í 2000 ára gömlum rústum Bagdadborgar og í
rústum Babel-borgar hafa fundizt eins konar rafgeymar, sem fram-
leiddu rafmagn. I indversku riti, 5000 ára gömlu, er því lýst, hvernig
rafgeymir er búinn til.
í Indlandi hefir fundizt ævaforn mynd, rist á klett. Hún sýnir
kassalagað flugtæki, sem flýgur yfir pálmalund. í ritunum Ramay-
ana Mahabharata, sem rituð eru á sanskrít, segir frá flugtækjum,
sem voru til í Vestur-Indlandi. Þau hétu vimaner. Þau virðast hafa
verið svipuð loftförum frá því um 1800. Má vel vera, að þau hafi
gefið hugmyndina um töfraklæðin, sem á mátti svífa yfir láð og
lög, eins og æfintýrin segja frá.
í indversku riti segir um þessa vimana, að með þeirra hjálp geti
menn svifið í loftinu og himneskar verur komið niður til jarðar.
Eitt indverskt rit talar um „Brama-vopnið“, sem virðist hafa ver-
ið eins konar ægikröftug kjarnorkusprengja, sem kom til vegar geysi-
legri eyðingu. Þetta minnir mig á það, sem mér var sagt fyrir þó
nokkrum árum, að við uppgröft í fornum stórborgarrústum í Aust-
urlöndum hefði verið komið niður á hellu eða klöpp, sem virtist