Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 77
NORÐURLJÓSIÐ
77
menn. Þessi dásamlega fórn Guðs sonar á að bræða klakann úr
hj örtum okkar, því að „hann elskaði oss að fyrra hragði.“ Til þessa
folessaða frelsara eigum við öll að koma, bjóða honum inngöngu í
hjörtu okkar, taka á móti honum, lifa honum og leitast við að gera
hans vilja. Þá þjónum við honum, og þá höfum við fyrirheit hans:
„Hvar sem ég er, þar skal og þjónn minn vera.“
Með öðrum orðum: Sæla með Kristi eða vansæla án hans 'bíður
okkar eftir dauðann, þótt líkaminn sofi í dufti jarðarinnar, unz
upprisudagurinn kemur.
S. G. J.
Ein orsök lélegrar heilsu barna
Munu þeir foreldrar finnast, að þeir vilji heldur, að börnin þeirra
séu heilsulítil en hraust?
Dr. Paul Cameron, háskólakennari í Bandaríkjunum, stjórnaði
athugun á 727 börnum í Detroit. I ljós kom, að sumum börnunum
var miklu hættar við að veikjast en öðrum. Þessi heilsulélegu börn
áttu öll foreldra, sem reyktu. Hin, sem ekki voru veikindagj örn, voru
börn foreldra, sem reyktu ekki. Dr. Cameron segir, að sjúkdómar í
öndunarfærum barna, sem eiga reykjandi foreldra, séu um það bil
tvisvar sinnum tíðari en hjá foinum, þar sem foreldrarnir reykja
ekki.
Svipuð athugun fór fram í Denver. Hið sama kom i ljós. Því oft-
ar, sem foörn þurfa að vera í tóbaksreyk, því hættar er þeim við
veikindum.
Það verður því vandamál, sem foreldrar verða að gera sér ljóst:
Hvort er betra, að þau reyki sér til ánægju og skemmi heilbrigði
barna sinna, eða láti tóbakið eiga sig og efli hreysti og þar með
heill afkvæma sinna? Hið fyrra er skammsýn eigingirni, sem hlýt-
ur að vera refsingarverð í augum réttlætis og kærleika Guðs. Hið
síðara kostar sjálfsafneitun til að byrja með, meðan hætt er við
tófoakið, en slík sjálfsafneitun er ekkert annað en sjálfsagður kær-
leikur, sem foreldrum ber að sýna gagnvart foörnum sínum. Eða
mundu foreldri taka því vel, ef þau byggju í sambýli með öðrum,
að samfoýlis fólkið spillti heilsu þeirra sjálfra varanlega, bakaði
þeim þjáningar og fjárkostnað vegna veikinda?
Reykingafólk, hafið þessa reglu Krists í huga: „Allt það, sem þér