Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 79
NORÐURLJÓSIÐ
79
Nú er farið að framleiða grammófóna úr pappa, svo að það er
jafnvel ódýrara að búa þá til en plötuna.
Talplötur með fagnaðarerindinu eru notaðar um allan heiminn.
Trúboðar, sem koma í stutta heimsókn til einhvers héraðs, geta skil-
ið talplötur eftir til að flytja fagnaðarerindið, þegar þeir eru farn-
ir. Menn, sem eru nýorðnir lærisveinar Krists, geta boðið vinum
sínum og nágrönnum að koma og hlusta á Guðs orð.
Hundruð manna, sem eru fjarri ættlandi sínu, — Pakistanbúar í
Bretlandi, Tyrkir í Þýzkalandi, Alsírbúar í Frakklandi — eru stór-
hrifnir af að eiga talplötur á eigin tungu.
Maður nokkur heimsólti skip í hafnarkvíunum og hafði margar
talplötur með sér. Á grísku skipi hitti hann 31 sjómann. Við athug-
un sá hann, að hann hafði 31 talplötu á þeirra máli.
Indversk hjúkrunarkona í sjúkrahúsi í Lundúnum spilar Gujurati
talplöturnar sínar, þegar heimþráin grípur hana.
í Róm. 10. 14. lesum við: „Hvernig eiga þeir að heyra?“
Þúsundir manna heyra Guðs orð og trúa, er þeir hlusta á tal-
plöturnar. (Þýtt úr „From Other Lands“, jan. 1968.)
Arthur Gook las eða talaði inn á plötur á íslenzku. Af þeim mun
hafa komið sending til Ölafs Sveinbjörnssonar, Erluhrauni 3, Hafn-
arfirði.
TRÚRÆKINN EÐA FRELSAÐUR?
Hver er munur á trúrœkni eða frelsun?
Fyrirspurn til dr. Bill Rice.
(Þýtt úr „The Sword of the Lord.“)
Einhver trúræknasti náungi, sem ég hefi séð, var töfralæknir í
Afríku! Ef þið nefnið trúaráhuga, þá hefðuð þið átt að sjá hann. í
samanburði við hann eru allir Baptista prédikarar, sem ég þekki,
ekki aðeins dauðir, heldur er líka búið að smyrja þá, og jafnvel
prédikarar Hvítasunnumanna eru sofandi! Töfralæknirinn þaut um,
brennandi af guðrækni áhuga, hoppaði og dansaði, þvaðraði og
sönglaði.
Hann þurfti ekki reipi til að halda áheyrendum sínum föstum.
Bihlíu-kennarar, sem nota kvikmyndir, skuggamyndir eða hluti til
að kenna með, eru þunnir sem undanrenna í samanburði við að-