Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 88
88
NORÐURLJÓSIÐ
þess. Hann igetur því nálægt sig okkur mönnunum sem frelsari okkar.
Guð býður nú öllum mönnum fullkomna, ókeypis fyrirgefningu í
nafni Jesú, upprisna, uppstigna og upphafna frelsarans okkar (Post.
13. 38.). Hinn lifandi Drottinn Jesús ávarpar þig sjálfur. Hann seg-
ir þér í orði sínu, að hann kom frá himnum, leið á krossi og úthellti
þar blóði sínu fyrir þig. Hann segir við þig: „Komið til mín, allir
þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun gefa yður hvíld“
(Matt. 11. 28.).
Vinur minn einn var staddur við sjóinn og stóð á hafnarbakkan-
um, þegar hræðilegur stormur geisaði. Rétt fyrir utan höfnina var
skip í háska. Mannaður bj örgunarbátur var tilbúinn að leggja af
stað skipverjum til hjálpar. Svo virtist, að skipið gæti sokkið á
hverju andartaki. Vini mínum til undrunar stóðu björgunarmenn-
irnir grafkyrrir, hver á sínum stað, og biðu. Loks gat vinur minn
ekki látið vera að spyrja: „Hvers vegna leggið þið ekki af stað,
piltar?“ „Við bíðum eftir neyðarmerkinu frá þeim, herra.“ Rétt um
leið sendu skipverjar upp eldflaug. Björgunarbáturinn var kominn
að hlið skipsins eftir fáeinar mínútur, og öllum var bjargað.
Heimfærðu nú þessa sögu til sjálfs þín. Sendu upp neyðarmerki
og láttu neyðarkallið heyrast frá hjarta þínu: „Guð, vertu mér synd-
ugum líknsamur!“ (Lúk. 18. 13.) Festu traust þitt á Jesúm, að
hann er frelsari þinn.
Hvað gerist á því andartaki, er þú tekur við Drottni Jesú sem
frelsara þínum og býður honum hjarta þitt? í>á verða syndir þinar
afmáðar að eilífu. Þú verður Guðs barn (Jóh. 1. 12.). Þú munt
aldrei að eilífu glatast, þú ert kominn í lífssamband við Jesúm og
færð að reyna nálægð hans og kraft.
Kristindómurinn gefur svar við þrá flugmannsins: „Eg vil eign-
ast trú.“ Sannur kristindómur er dásamlegur, lifandi frelsari, Drott-
inn Jesús Kristur. Allt, sem gera þarf af okkar hálfu er: að þekkja
ihann sem frelsara, Drottin og vin.
Þegar þú treystir á það, að Drottinn Jesús fullkomnaði það verk,
sem þurfti til að veita þér eilífa fyrirgefningu Guðs, munt þú eiga
samvizkufrið og finna hjá Kristi allt, sem þú þarft til að fylla og
seðja hjarta þitt.
Þegar þú sér það í trú, reiðir þig á það, að Drottinn Jesús var
framseldur vegna misgerða þinna og reistur upp frá dauðum vegna
réttlætingar þinnar, þá munt þú eiga frið við Guð, og við það að