Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 164
164
NORÐURLJÓSIÐ
sínu. Þá vercfa hinir dánu dæmdir samkvæmt verkum sínum. Ef
menn hafa af hjarta snúió sér til Drottins Jesú Krists, veitt honum
viðtöku sem frelsara sínum, með öðrum orðum: fengið fyrirgefn-
ingu synda sinna og endurfæðzt, þá verða verk þeirra góð, Guði til
dýrðar og mönnum til blessunar. En endurfæðist maðurinn ekki,
fái hann ekki fyrirgefningu synda sinna, þá getur Guð ekki látið
góðverkin kvitta fyrir vondu verkin. Hann hefir fyrir munn Drott-
ins Jesú Krists tjáð oss úrskurð sinn: „Enginn getur séð Guðs ríki,
nema hann endurfæðist.“ (Jóh. 3. 3.)
Ef þú, kæri lesandi, ert ekki endurfæddur, þá getur þú séð það í
erindinu „Aðeins handa góðu fólki,“ á hvern hátt endurfæðing fer
fram. Sá Guð, sem endurskapaði himininn og lífið á jörðinni, get-
ur líka endurfætt þig, gefið þér guðlega lífið, gleðilega, bjarta fram-
tíð bæði í þessum heimi og í hinum komandi. Við getum mætzt þar
vegna náðar og fyrirgefningar Drottins Jesú Krists. Mættu mér
heima hjá honum. — S. G. J.
Allt stefnir það í sömu áttina
Orðin „Sameinuðu þjóðirnar“ má segja, að séu á hvers manns
vörum. Allir vita, að heimsstyrj öldin skelfilega frá 1939—1945
knúði menn til að reyna að finna einhverja leið til að afstýra því,
að slík styrjöld æddi yfir heiminn í annað sinn. Með þeim vopnum,
sem mannkynið ræður nú yfir, yrði hún hálfu ægilegri og mann-
skæðari en hin og meira en það.
Sú hugsun lét því snemma á sér bera, að náin samvinna yrði að
vera þjóða á milli á sem flestum sviðum. Var komið svo í ágúst
1966, að þá störfuðu 16 alþjóðanefndir á vegum SÞ, sem raunveru-
lega eiga að vinna að því, að heimurinn allur verði eitt ríki, er tímar
líða fram.
Þetta er einmitt það, sem biblían spáir, að eiga muni sér stað.
Heimurinn á í vændum að lúta stjórn eins manns. Hann verður síð-
asti einvaldurinn, sem drottnar yfir mönnunum áður en Kristur
kemur. Koma þessa mikla einvalds verður fyrir tilverknað Satans,
segir bihlían. Hann „rís upp gegn öllu því, sem kallast guð eða helg-
ur dómur.“ Hann mun hafa aðstoðarmann, sem kemur því til vegar,