Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 153
NORÐURLJÓSIÐ
153
okkar? Við höfum gert svo margt rangt; en við óskum eftir
að fylgja Jesú og verða eins glöð og hún Solito!“
„Ó, bið þú Guð um, að hann vilji fyrirgefa mér syndir
mínar,“ sagði móðirin og grét. „Hann er áreiðanlega hinn
eini, sanni Guð, því að hann hefir breytt Solito minni og
gert hana að góðri stúlku. Hann á dásamlegan mátt! Sjáðu,
Solito er orðin heilbrigð! Já, ég óska líka eftir því, að fylgja
honum! “
Þegar Florentine fór úr húsinu um kvöldið, var hún mjög
hamingjusöm. „Guð hefir meir en svarað bænum okkar,“
sagði hún. „Hann hefir ekki aðeins gert Solito heilbrigða;
en nú hefir líka móðir hennar og fjölskylda tekið á móti
hjálpræði hans.“
ERFIÐUR FERILL
Þegar Robert Morrison fór til Kína sem trúboði árið 1807, héldu
margir, að hann væri brjálaður. Einhver sagði háðslega við hann:
„Jæja, herra Morrison, þér ætlið í raun og veru að hafa áhrif á hjá-
guðadýrkunina í stóra, kínverska keisaraveldinu?“
„Nei, herra minn, það ætla ég ekki að gera,“ svaraði Morrison,
„en ég vænti þess, að GUi) muni gera það.“
Með Krist í hjarta sér og biblíuna í hendinni fór hann — einn
maður á móti fjögur hundruð milljónum manna. Hann var einmana,
ofsóttur og fyrirlitinn. Að þrettán árum liðnum hafði hann snúið
allri biblíunni á kínversku.
Hann fór aleinn til starfs fyrir Guð með mikilli trú. Guð launaði
þessa trú, og margir Kínverjar urðu kristnir á þeim árum, sem fóru
í hönd.
Gleymdu ekki að biðja fyrir kristnum mönnum í Kína. Við heyr-
um ekki mjög mikið um þá. Eins og Robert Morrison eru þeir of-
sóttir nú. Þeir eru einmana vottar Krists í geysistóru landi, sem
kommúnistar ráða. Bið þú um, að trú þeirra verði sterk og að þeir
megi þekkja huggun og gleði nálægðar Guðs með þeim í erfiðleik-
um og hættu. (Úr „From Other Lands.“)