Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 130
130
NORBURLJÓSIÐ
Þegar við sjáum, að vð uppfyllum ekki kröfur lögmáls Krists —
og lögmál hans er miklu fyllra í kröfum sínum en Móselögmál, 10
boðorðin frá Sínaí — hvar getur þá andi okkar fundið frið og at-
hvarf? í þessari blessuðu staðreynd: Kristur dó fyrir mig. Dauði
Krists tryggir okkur fyrirgefningu hans, og „blóð Jesú, sonar hans
(Guðs), hreinsar oss af allri synd.“
En við megum ekki nema staðar við þetta: „Jesús dó fyrir mig.“
Okkur her að líkjast Páli postula. Hann hafði öðlazt réttlætið frá
Guði með trúnni á Drottin Jesúm, af því að Kristur dó fyrir hann.
En hann nam ekki staðar þar. Hann vildi þekkja Krist, kraft upp-
risu hans og samfélag písla hans, orðinn sammyndaður dauða hans.
„Ekki er svo, að ég hafi þegar náð því (að lifa sem maður uppris-
inn frá dauðum), eða sé þegar fullkominn, en ég keppi eftir því, ef
ég skyldi geta höndlað það . . . ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndl-
að það; en eitt geri ég: ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir
því, sem fyrir framan er, og keppi þannig að markinu, sem himin-
köllun Guðs í Kristi Jesú hýður.“ (Lesið Filippíhréfið 3. kap.
2.-6.)
Ofullkomleiki og ósigrar mega ekki verða börnum Guðs fjötur
um fót, sem hindri þau á trúarbraut sinni, heldur hvatning til að
keppa fram að markinu: að lifa og dvelja í Kristi, að læra að taka á
móti gnóttum lífs hans á hverju andartaki. „An mín getið þér alls
ekkert gert,“ ekki einu sinni það að lesa og íhuga kenningu Krists,
hvað þá að lifa samkvæmt henni.
S. G. J.
6.
ELSKAR ÞÚ KRIST?
Eftir C. Stacey Woods.
Ef ég trúi á Krist, mun ég elska hann. Ef ég elska hann, verð ég
að hlýðnast honum. Hlýðnist ég Kristi ekki, þá er augljóst, að í
raun og veru elska ég hann ekki eða trúi á hann.
Kristindómur er ekki heimspeki fyrst og fremst, né siðfræði eða
kenningakerfi. Hann er persóna. Kristindómur er Kristur. Það, að
vera kristinn, er að tilheyra Kristi, elska Krist, lifa í samfélagi við
Krist og að hlýða honum.