Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Page 113
113
á annan veg; það varð eins konar kennimanna
minni; þar var talað um, að Marteinn biskup hefði
verið ágætur kennimaður, og líkir honum ættu allir
kennimenn að vera. I Marteins minni í J. Sig. 120
8vo er og minzt á Martein Lúther; þar með fylgja
og hugleiðingar um klerkdóminn og fyrirbænir fyrir
honum. I landsbs. 91 8vo eru »»ers« og »vísur«
fyrir Marteinsminni. Eitt versið er þannig:
Minning mæt að sönnu
Martini vel skartar,
höfuð og háleit prýði
hann var kennimanna;
andlegir eins á stundi
allir sina kallan,
lít og lærdóm hafi
líkan biskup slíkum.
I>ar með fylgir þessi »vísa« eða »slœmur« fyrir
xbrúðarJcróJc*1:
Minnið á sem má eg tjá
Martínus hinn góði;
heiðurinn sá, sem helztur má,
hveríi að ungu fljóði. (o: brúðinni).
Svo sem áður er sagt, varð sá siður almennur
síðar, að brúðkaupssetningin og griðasetningin fylgdi
minni guðs föður. í landsbs. 91 8vo er langur for-
máli fyrir þessu minni. Þar er brúðTcaupssetningin
þannig:
1) f>á er ssgt er, að »vísan« eða »versið« sje »fyrir
brúðarkrók<, er það svo að skilja, að söngurinn átti sjer-
Staklega við brúðina, og var sunginn henni til heilla og ham-
ingju. Yísur og vers »fyrir brúðgumakrók« eiga við brúð-
gumann á sama hátt. Vísur »fyrir mitt borð« munu hafa
átt við allan veizlusöfnuðinn og þó sjerstaklega brúðhjónin i
sameiningu. Það má og vera, að söngflokkurinn hafl staðið
við »mitt horð«, »brúðarkrók« eða »brúðgumakrók«, eptir þvi
sem við átti, meðan söngurinn fór fram.
8