Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Page 157
157
drukkiö kaffi þannig tilbúið i Aþenuborg, og jafn-
gott kaffi þikist jeg hvergi hafa bragðað. Enn verið
getur, að kaffið hafi í sjálfu sjer verið betri tegundar
enn alment gerist.
Úr kaffikorg og kllði búa menn til deig, sem
haft er til gæsa- og hænsnafóðurs. Skal hata 1 pund
af korg móti 2 pundum af klíði. Fuglarnir verða
mjög feitir af þessu og kjötið bragðgott.
Að visu hafa margir haft mikið á móti kaffinu,
talið það óholt firir heilsuna, kallað það »seinvirkt
eitur* o. s. frv. Einkum bar mikið á þessu framan
af, meðan kaffið var að riðja sjer til rúms. Hahne-
mann, faðir smáskamtalækninganna, var mikill kaffi-
óvinur, og svo hefur verið um fleiri. Því verður
ekki heldur neitað, að kaffi getur haft skaðlegar
afieiðingar firir heilsuna, ef þess er neitt í óhófi.
Enn hins vegar er engin hressing hollari enn góður
kaffibolli, ef menn kunna sjer hóf i nautninni. Að
þessu leiti hefur kafið mikla ifirburði ifir áfenga
drikki, og væri mikið unnið, ef drikkjumennirnir
vildu halla sjer að kaffinu i stað áfengisins. Ekki
er það óliklegt, að hin mikla kaffidrikkja hjer á
landi eigi mikinn og góðan þátt 1 þvi, að ofdrikkja
hefur minkað á hinum síðasta mannsaldri, og verður
það varla metið, sem vert er. Erlendis hafa menn
lengi haft opin augun firir þeirri þiðingu, sem kaffi
og te hafa til að sporna við ofnautn áfengra drikkja.
Hafa mannvinir tekið sig saman og komið á fót
veitingahúsum, þar sem kaffi, te, súkkulaði, gos-
drikkir o. fl. er haft á boðstólum með lágu verði,
ann engir áfengir drikkir eru veittir. Hver sem vili
er boðinn og velkominn á þessum stöðum; hverjum
manni er heimilt að ganga þar inn, sitja þar og
spjalla við kunningja sina eða lesa blöð, þó að