Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 48

Andvari - 01.01.1996, Page 48
46 EINAR ÓLAFSSON ANDVARI herafli hafður hér, að stríðinu loknu.“ Þetta var í samræmi við þá stefnu sem sósíalistar höfðu haft áóur en stríðið hófst, að íslendingar færu fram á það við fjögur ríki, England, Frakkland, Bandaríkin og Sovétríkin, að þau lýstu yfir því, að þau skoðuðu árás á ísland sem árás á sig, og tækju að sér vernd íslands með þessu móti.32 „Við meg- um aldrei falla til fóta áhrifasvæðakenningunni,“ sagði hann í grein í Þjóðviljanum 17. júní 1944. En í þessari þingræðu lagði Brynjólfur líka áherslu á að íslendingar kappkostuðu að gera sambúðina við ameríska setuliðið sem vandræðaminnsta en halda djarflega á öllum rétti sínum. „Það er sama, hvort alþýðumaðurinn í hermannakufli á heima í Bandaríkjunum, Bretlandi eða í öðrum löndum, hagsmunir hans eru alls staðar hinir sömu. . . Þeir munu reynast beztu íslend- ingarnir, sem hafa hina sósíalísku alþjóðahyggju að leiðarvísi í allri sinni framkomu.“ En alla tíð lagði Brynjólfur mikla áherslu á að losa Island út úr þessu hernaðarsambandi hvert sem form þess hefur ver- ið. Það varð grundvallarbaráttumál upp frá þessu. Á fyrstu árum sínum herti Sósíalistaflokkurinn mjög á baráttunni fyrir óflokksbundnu verkalýðssambandi. Á Alþýðusambandsþingi haustið 1940 var loks samþykkt að skilja það frá Alþýðuflokknum. Og nú tókst að sameina hin klofnu verkalýðsfélög. í árslok 1941 hófu verkalýðsfélögin baráttu fyrir bættum kjörum sem harðnaði upp úr áramótum og náði hámarki þegar leið á árið 1942. Þótt Alþýðuflokk- urinn drægi sig út úr ríkisstjórninni þegar hún setti bráðabirgðalög á verkalýðshreyfinguna í ársbyrjun 1942 hélt hann og Alþýðusam- bandsforystan mikið til að sér höndum meðan á þessari baráttu stóð en Sósíalistaflokkurinn sýndi verkamönnum virkan stuðning og margir forystumenn í aðgerðunum komu úr hans röðum. Með sigri verkalýðsins í kjaradeilunum og kosningasigrum Sósíal- istaflokksins 1942 breyttust valdahlutföllin á íslandi. Það varð ekki gengið framhjá þeim flokki sem Alþingi lýsti tveim árum fyrr óalandi og óferjandi. Staða sósíalista breyttist líka mjög eftir að Þjóðverjar réðust á Sovétríkin í júní 1941 og síðan áttu þeir ágætt samstarf við hina flokkana vegna kjördæmamálsins 1942 og undirbúnings lýðveld- isstofnunarinnar. Flermann Jónasson og hans armur í Framsóknar- flokknum fóru að gæla við hugmynd um vinstri stjórn með þátttöku Sósíalistaflokksins og eftir haustkosningarnar lagði Ólafur Thors til að mynduð yrði nefnd allra þingflokka til að freista þess að mynda
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.