Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 87

Andvari - 01.01.1996, Page 87
andvari HINN LANGI OG SKÆRI HLJÓMUR 85 ófrjálsan og verk þeirra óhjákvæmilega afleiðing af þeim öflum, sem á viljann verk- uðu. Þessi afstaða leiddi til samúðarfulls skilnings á mannlegri breytni og um- burðarlyndis gagnvart mörgu sem áður hafði verið fordæmt. Af því leiddi ákveðna mannhyggju þegar pósitívistar líka afneituðu guðlegri forsjón og settu manninn í öndvegi sem æðstu veru og töldu verk unnin í annarra þágu hin einu störf sem varanlegt gildi hefðu. Mikið gildi fyrir marga rithöfunda raunsæiskynslóðarinnar, ekki síst á Norðurlöndum, höfðu ýmsir þættir í kenningum svonefndrar nytjastefnu sem átti upptök sín á Englandi og kunnust varð af ritum John Stuart Mills. Það voru einkum kenningar nytjastefnusinna um náttúrlegan rétt allra nranna til lífshamingju, um frelsi einstaklingsins gagnvart valdsstofnunum auðmagns, ríkis og trúarbragða. Ekki síst höfðu kenningar John Stuart Mills um rétt og stöðu kvenna gríðarleg áhrif á Norðurlöndum, en Georg Brandes þýddi rit hans The Subjection of Women á dönsku 1869. Af hluthyggju og vísindahyggju pósitívismans leiddi að ýmsar uppgötv- ar>ir í náttúruvísindum 19. aldar gjörbreyttu heimssýn alls þorra manna. Naumast munu nokkrar kenningar hafa haft meiri áhrif en þær sem Charl- es Darwin setti fram um uppruna tegundanna. Þær áttu mestan þátt í því að mola undirstöður hins lútherska rétttrúnaðar í okkar heimshluta. Enn ntá nefna að þjóðfélagskenningar sósíalista og jafnaðarhugmyndir þeirra, en fylgi við þær margfaldaðist á síðara helmingi 19. aldar, féllu mjög að mannhyggju pósitívismans og hamingju- og frelsishugmyndum nytjastefnu- manna. Raunsæisstefnan er venjulega talin hefjast í frönskum bókmenntum upp úr 1830. Það sem við köllum einu nafni raunsæisstefnu ber í evrópskum málum þrjú heiti — realismus, naturalismus og impressionismus - og eru í reynd þrjú skeið sömu hreyfingar þar sem hvert tekur við af öðru. Hug- myndalega reisa þau öll á grundvelli pósitívismans en aðgreinast nokkuð um listræn vinnubrögð. Oft er talið að realisminn birtist fullskapaður í skáldsögu Gustave Flau- berts Madame Bovary 1857. Flaubert lagði áherslu á algjöra hlutlægni höf- rmdarins. Hann átti að standa utan við verkið, lýsa aðeins því sem fram fór °g allir gátu heyrt eða séð, en blanda ekki inn í frásögnina eigin viðhorfum, skoðunum eða tilfinningum. Með natúralismanum bætist svo við krafan um tilgang bókmennta. Mik- ilvægustu kenningasmiðir hans voru bókmenntafræðingurinn Hippolyte Taine og rithöfundurinn Émile Zola. Fræg er sú kenning Taines að dygðir °g lestir séu afurð rétt eins og sykur og brennisteinssýra og sýnir vel lög-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.