Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1996, Side 93

Andvari - 01.01.1996, Side 93
andvari HINN LANGI OG SKÆRI HLJÓMUR 91 voru raktar í innra eintali, í óbeinni eða hálfbeinni ræðu, þess freistað að virkja lesandann til meðhugsunar án þess að höfundurinn træði sjálfur fram þó að auðvitað ritstýrði hann öllu á bak við tjöldin. Höfundur er lét sér svo annt um sálarlíf persóna sinna sem Einar H. Kvaran hlaut að fága þessa frásagnaraðferð. Ég nefni sem dæmi um hana þriðja kaflann í Ofurefli, andvökuhugsanir séra Þorvalds fyrstu nóttina eftir komuna til Reykjavíkur. Önnur nýjung raunsæisstefnunnar, ekki minna verð en frásagnartæknin, var persónusköpunin og val á söguhetjum. Sá þáttur tengdist líka hneigð og tilgangi höfundanna. Allt frá klassískum tíma höfðu smælingjar og oln- bogabörn, hamlaðir menn og fatlaðir verið í algjörum aukahlutverkum, ef þeir voru þá ekki beinlínis grínfígúrur. Við höfum Þersítes hjá Hómer, þrælinn Þórð huglausa sem lét lífið fyrir Gísla Súrsson. Jón Thoroddsen skopast miskunnarlaust að vesalingum eins og Þorsteini matgogg og Hjálmari tudda. Með raunsæisstefnunni er smælinginn, olnbogabarnið, ut- angarðsmaðurinn hafinn til hlutverks hetju. Vissulega hafði Gestur Pálsson brotið ísinn í þessu efni og Þorgils gjallandi fylgt á eftir. Einar H. Kvaran var þó sá sem öðrum fremur veitti slíkum persónum þegnrétt sem hetjum í sögum sínum. Þorrinn allur af smásögum hans hefur smælingja að sögu- hetju og þeir gegna líka mikilvægum hlutverkum í skáldsögum hans. Með raunsæisstefnunni hlutu líka konur nýtt hlutverk í skáldverkum og nýjar kvengerðir voru hafnar til vegs sem söguhetjur. Það var hin full- þroska, lífsreynda, víðsýna og heillynda kona sem varð eins konar ídeal raunsæishöfunda. Án alls efa hafði bók John Stuart Mills um kúgun kvenna í þýðingu Brandesar mikið gildi fyrir norræna höfunda í þessu efni. í heilleika sínum stóðu þessar konur oftar en ekki andspænis hálfum og holum sveimhugum karlkyns. Kvennasafnið í sögum Einars er ákaflega fjölbreytilegt. Við hittum þar satanískar kerlingar, fullar kvalalosta eins og Ólöfu í „Fyrirgefningu“ eða Þorgerði í „Vistaskiptum“. Við kynnumst hetjusmælingjum eins og Vitlausu Gunnu eða Grímu í Sambýli. Og svo eru Wenntuðu og víðsýnu konurnar: Yfirdómarafrúin og dóttirin í Ofurefli, Rannveig í Sambýli og nafna hennar í Sögum Rannveigar. Slíkar konur í sögum Einars eru þó allar auðmjúkari og sveigjanlegri en systur þeirra í verkum Ibsens eða Strindbergs eða bara bornar saman við Önnu í „Vor- draumi“ Gests Pálssonar. Sérstakur flokkur í persónusafni Einars eru þær myndir sem hann dregur UPP af borgurum sinnar tíðar. Um þá skiptir mjög í tvö horn. Annars vegar sjáum við spillta sérhagsmunaseggi, gróðabraskara nýrrar stéttar athafna- rnanna. Þessir einstaklingar gegna oftar en ekki hlutverki söguþrjóta hjá Einari. Meðal þeirra eru Þorbjörn í Ofurefli og Gulli, Jósafat í Sambýli og Kaldal í Sögum Rannveigar. í flokk þessara illmenna slást a.m.k. í tveimur sögum óprúttnir blaðamenn. Hins vegar eru hinir menntuðu, mannúðlegu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.