Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1996, Side 105

Andvari - 01.01.1996, Side 105
andvari NÚTÍMALEG SKÁLDSAGNAGERÐ 103 barn, Jón er barnið og Geiri drekkir honum. í enn eldra lífi er Geiri víking- ur og drepur menn, næst þar áður rómverskur höfðingi í Karþagó í Afríku og Jón þræll hans. Og svo framvegis. I seinni hluta sögunnar vendir skáldið kvæði sínu í kross og hafa nú liðið hvorki meira né minna en sjö aldir. Pá er högum manna svo komið að flest- um þykir andstyggð að éta dýrakjöt og blóð. I staðinn snæða menn „ket- líki“, sem búið er til í verksmiðju. Þá kemur fram að börnin fara gjarna á flugvél í skólann, allir geta fengið ókeypis farþegaflutning hvert á jörð sem er og í skólanum fær Geiri leyfi til að setjast við „hljóðberavél“ kennarans. Og nú gat hann, með því, að styðja á ýmsa tappa, heyrt og fengið augna- bliksmyndir af öllu, sem gerðist í öllum bekkjum skólans. í neðsta bekk var verið að kenna að stafa með einhverskonar talvélum. Á öðrum stað var verið að kenna landafræði með kvikmyndum (57-58). Eftirfarandi kafli sýnir hvernig Sigurjón hugsaði sér að yrði umhorfs á Akureyri eftir sjö ald- ir: „Hvaða glitrandi flötur í öllum regnbogans litum er þarna úti frá?“ spurði Óli litli. „Það er nú höfuðstaður Norðurlands," sagði Geiri. „Og þessir litir þarna stafa af musteriskúplunum og margvíslega litum turnum og hvolfþökum í borginni. Hérna beint undir var einu sinni sjór, botninn á firðinum. Nú eru hér, eins og þú sérð, ein- lægir akrar og aldingarðar, sem Ræktunarfélag Norðurlands á. í sama bili rendi [flug- vélin] „Svanurinn" sér ofan og inn í loftbátakví borgarinnar. „Hvaða bygging er þetta, svona geisilöng og himinhá?" spurði Óli. Hann hafði aldrei komið til borgar- innar fyr. „Þetta eru aðalverslunarhús kaupfélagsins. Aðrar verslanir eru nú ekki til í borginni, svo það er von að húsin séu stór. - Sem betur fer, erum við nú búnir að útrýma kaupmönnunum hér, bætti Geiri lágt við. Hann vissi, að kollhríðin var eftir. Og hann vildi gera þetta að stjórnmálalegu atriði. - „Hreinsa alt landið," sagði hann. Þeir gengu meðfram sléttslípaðri aðalgötu borgarinnar. Myndastyttur og minnismerki sáust hvarvetna meðfram strætinu. í kringum hvert einasta hús var matjurtagarður að baki og skemtigarður til hliða og að framan. Eftir strætinu liðu hinir léttu fjaður- mögnuðu rafmagnsvagnar þegjandi og hljóðalaust. Fólkið fór í fylkingum eftir gang- stéttunum, alt skartbúið. Fjöldi hvarf inn í lestrarstofurnar. Og mjög margir gengu í listaskólana. - Allir voru hættir vinnu. - Klukkan var orðin fjögur, - svo að Óli fékk ekki að sjá rafmagnsverksmiðjurnar að starfi. Víða sáust skínandi gosbrunnar í skemtigörðum og smástöðuvötn, speglandi fagra runna. Óli var síspyrjandi, og Geiri sýndi honum hin stærri musterin, hin geisistóru samkomuhús borgarinnar, háskólann, sjúkraskýli og þar á meðal sjúkrahús fyrir alla lögbrjóta, og nutu þeir sérstakrar lækn- islistar. Síðast fóru þeir Geiri inn í listasafnið og dvöldu þar lengi dags - og þaðan rakleitt í gistihúsið. Óla litla varð litið inn í eldhúsið. Þar sátu stúlkur tvær og héldu á símaheyrnartóli. Þær höfðu borð fyrir framan sig alsett smátöppum og drápu þær gómunum á tappana í sífellu. - Óla var sagt að önnur væri að sjóða matinn, sem pant- aður væri, en hin væri að afgreiða gestina. Geiri settist í borðstofuna og talaði í tal- færið. Og samstundis kom mannlaust borð líðandi eftir spegilsléttu gólfinu og það staðnæmdist fyrir framan þá feðga, færandi lostæta ávexti og aðrar vistir. (65—67) Þetta er auðvitað sígilt óskaland eða útópía, og sem slík stendur hún mitt á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.