Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1996, Side 114

Andvari - 01.01.1996, Side 114
112 JÓN KARL HELGASON ANDVARI ist sem kenningar íslenska skólans og hugmyndir Halldórs um hinar gömlu bækur hafi farið saman í veigamiklum atriðum á þeim tíma. Má jafnvel líta svo á að Halldór hafi um hríð verið óopinber meðlimur íslenska skólans og þeirra djarfastur. I Arið 1933 hóf göngu sína ritröð Hins íslenzka fornritafélags, íslenzk fornrit, með útgáfu Sigurðar Nordals á Egils sögu Skallcigrímssonar. Ári síðar sendi Fornritafélagið frá sér Laxœla sögu í útgáfu Einars Ólafs Sveinssonar og árið 1935 kom Eyrbyggja saga undir ritstjórn Einars Ólafs og Matthíasar Þórðarsonar. Sama ár birti Halldór Laxness örstutta blaðagrein þar sem hann mótmælir því að íslenskir fræðimenn gefi fornsögunnar út með svo- kallaðri samræmdri fornri stafsetningu. Halldór segir að samanburður á út- gáfu Fornritafélagsins og viðkomandi handritum leiddi í ljós að hin sam- ræmda stafsetning væri „jafnfrábrugðin stafsetníngu hinna gömlu handrita einsog stafsetníngu íslensks nútímamáls11.7 Að hans mati er það „fjandskap- ur“ við fornbókmenntirnar „að setja þær af stafsetníngar-ástæðum utan við lifandi ritmál þjóðarinnar, einsog það er á hverjum tíma“. Að vísu viður- kennir Halldór nauðsyn þess að gefa út stafréttar útgáfur og ljósprentanir handa fræðimönnum en hann krefst þess að almennar lestrarútgáfur verði ekki lengur keyrðar í dauðar viðjar „hótfyndinna skólaspekínga“: Samræmda stafsetníngin, þetta hvimleiða málfræðínga-esperantó, hrindir lesandan- um frá sögunum, einsog allar dauðar reglur hljóta að gera, en með eðlilegri stafsetn- íngu verður hverjum manni augljóst, sem les, að sögustíllinn er ekki dauður bókstaf- ur, heldur okkar eigið mál, sem vér notum þann dag í dag, fagurt og lifandi nútíma- mál. (s. 122-23) Máli sínu til stuðnings tekur Halldór dæmi af tveimur málsgreinum úr ís- lendingabók og Landnámabók, fyrst eins og þær líta út í handritum, síðan með samræmdri stafsetningu og loks með nútímastafsetningu. Var nú allt kyrrt um hríð. Ný bindi í ritröð Fornritafélagsins komu út eitt á fætur öðru á tímabilinu 1935 til 1940 án þess að þar sæjust merki um að gagnrýni Halldórs hefði borið tilætlaðan árangur. Haustið 1941 birtist svo fréttatilkynning í dagblaðinu Vísi um væntanlegar haustbækur Víkings- prents, bókaútgáfu Ragnars Jónssonar í Smára. Þar kom fram að í ráði væri „að gefa íslendingasögurnar út í nýrri útgáfu, þar sem málið á þeim er fært í nútímabúning, og þurrum ættartölulanglokum sleppt“.8 Þess var ennfrem- ur getið að Halldór Laxness hefði verið fenginn til að annast útgáfu fyrstu sögunnar, sem yrði Laxdœla saga.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.