Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1996, Síða 136

Andvari - 01.01.1996, Síða 136
134 GUNNAR KARLSSON ANDVARI nútímanum með penna sinn. Ég ætla annars ekki að ræða þetta efni, en að- eins birta svolitla klausu. Höfundur er þar að ræða hvernig norrænir rithöf- undar á 19. og 20. öld hafi sótt efni og stílfyrirmyndir til íslenskra forn- sagna, Tegnér, Ibsen, Undset. Svo heldur hann áfram:31 Á hitt er ekki úr vegi að minna, að enn er vandséð, hversu endingargóðar þessar nýrri norrænu bókmenntir verði á komandi öldum, þar sem enginn vafi getur á því leikið, að til sígildustu fornsagnanna muni menn hverfa aftur og aftur, þó að tízku- breytingar kunni á stundum að fjarlægja þær ráðandi smekk almennra lesenda. Það er sannarlega ekki að ástæðulausu, þótt íslendingar séu minntir á þetta allt saman, ekki til þess að miklast af því, sem ef til vill gerist ekki þörf, heldur til þess að glæða hjá þeim meiri virðingu fyrir sögunum en svo, að þeir haldi til að mynda, að þeir geti borið fram skoðanir á þeim, sem eru ekkert annað en hreppapólitík, eins og rætt væri um það á alþingi, hvort einhver vegarspotti eigi að takast í þjóðvega tölu. Um leið og slíkar bókmenntir hafa verið skapaðar, eru þær ekki lengur einkaeign þjóðarinnar, heldur sameign allra þjóða, sem vilja gefa þeim gaum, og frjálst um- ræðuefni, hvort sem höfundarþjóðinni líkar það betur eða verr. Síðasttalda umræðuefnið í Fragmenta, skýringin á blóma íslenskrar orð- menntar á miðöldum, er auðvitað sígilt líka. Sigurður hnitar í kringum þetta efni í drögum sínum. Fyrsti kaflinn heitir „Kraftaverk“. Þar er spurn- ingunni varpað fram hvað hafi skapað sögurnar og sýnt fram á að atburðir sögualdar nægi ekki til að skýra tilurð þeirra. Hér skilgreinir höfundur líka hugtakið kraftaverk og sýnir þannig að hann notar það í fullri alvöru um sagnaritunina, beitir því ekki sem ýkjum til að leggja áherslu, eins og tíðast er í daglegu máli. Hann segir:32 Þegar ’kraftaverk' er ekki haft í hinni sérstöku guðfræðilegu merkingu - sem hér kemur ekki til greina, - er það ekki annað en bráðabirgða- eða undanbragðsheiti þess, sem menn treysta sér ekki til að neita, að átt hafi sér stað, en þeir skilja ekki samkvæmt þeim lögmálum, sem þeir eru vanir að leggja trúnað á, eða finnst jafnvel koma beinlínis í bága við þau. í þessum kafla kemur engin tilraun til svars: forvitni lesenda hefur aðeins verið vakin, og næsti kafli heitir því hversdagslega nafni „Flokkun sagn- anna“. í tveimur síðustu köflunum er spurningin síðan tekin upp aftur:33 „Hvers vegna rituðu íslendingar sögur og Norðmenn ekki?“ Og nú orðar Sigurður kenningu sem hann hafði að vísu tæpt á áður, kannski oftar en einu sinni, en sannarlega í fyrirlestrinum „Auður og Ekla í fornmenntum Islendinga“ sem var haldinn árið 1946 og fyrst prentaður í Skírni 1986 í til- efni af aldarafmæli höfundar.34 I Fragmenta er hugmyndin sett fram og rökstudd stórum vandlegar. Hún er í stuttu máli sú að íslendingar hafi bætt sér upp einangrun frá Evrópu í fremur fátæklegu umhverfi íslands með því að einbeita sér að sögum, eins og danski sagnaritarinn Saxo hélt raunar fram strax um 1200. Landnámsmenn íslands völdu landið af fúsum og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.