Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 156

Andvari - 01.01.1996, Page 156
154 EIRÍKUR GUÐMUNDSSON ANDVARI ég freista þess að stíga yfir þröskuldinn muni ég bara detta“ (110). Skáld- sagan verður þannig að lokuðum, nánast kæfandi heimi sem kenna má við einmanalegt fullveldi tungumálsins; völundarhúsi þar sem engin leið liggur út hvorki fyrir söguhetjuna né lesandann. Niðurstaðan verður þunglyndis- legt muldur í harðlæstri formgerð; textinn nær hvorki að grípa inn í tilveru lesandans né breyta afstöðu hans til lífs eða dauða. V. Hvert á nú að beina heimþrá? Steinunn Sigurðardóttir: Hjcirtcistaður í skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur skarast nokkur merkingarsvið þeirra sagna sem hér eru til umfjöllunar; svið sem kenna má við ferð (Hí- býli vindanna, Dyrnar þröngu), land (Hraunfólkið) og þrá (Dyrnar þröngu, Ár bréfberans). Hæst ber svið ferðarinnar því í Hjartastað er sagt frá för þriggja kvenna frá Reykjavík austur á firði í þeim tilgangi að koma af- vegaleiddri unglingsstúlku, dóttur söguhetjunnar, á rétta slóð. Návist lands- ins er sterk, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Steinunn skrifar sig frá borg til sveitar - og snýr þannig upp á mýtuna um flutninginn úr sveitinni á möl- ina sem lá mörgum skáldsögum eftirstríðsáranna til grundvallar - en líkt og svo margt annað í þessari sögu er sú skrift tvíbent að því leyti að hún felur bæði í sér útsýn til lands og bóka. Á sama tíma og landið verður til fyrir augum lesandans skrifar Steinunn sig á listilegan hátt inn í heim bók- menntanna, í gegnum Suðursveit Þórbergs Þórðarsonar þar sem steinarnir tala, með viðkomu í furðuheimi Gyrðis Elíassonar, uns numið er staðar í vorlandinu sem, líkt og Kristján B. Jónasson bendir á í ritdómi um bókina, er hvergi til nema í skáldskapnum.12 Hjartastaðurinn er ekki aðeins staður á landakorti heldur tungumálið sjálft; hér er ferðast austur fyrir kort í land- fræðilegum og bókmenntalegum skilningi. Sagan lokast ekki þegar ferðalaginu lýkur í þeirri jarðnesku paradís sem bíður kvennanna á leiðarenda og er þráfaldlega boðuð í textanum. Þvert á móti hafnar hún endanlegum túlkunum með því að brjóta sjálfa sig upp með ótal sögubrotum sem eru táknræn fyrir leit söguhetjunnar að réttu faðerni og um leið eigin sjálfi. Þrátt fyrir það er leit Hörpu einmitt leit að endanlegri sögu sem er sagan um hennar eigin tilurð: harmsaga hennar eig- in ævi sem hún er stöðugt að semja eða finna titla á: „LOKUÐ SUND væri auðvitað fínn titill á sögu mína sem ég og enginn ætla aldrei að skrifa, og besti titillinn á líf mitt sem hefði aldrei átt að vera lifað“ (274). Það er hins vegar einn af ótal göldrum þessarar skáldsögu að þrátt fyrir hamskipti Hörpu í lok sögunnar renna þráin og innri maður ekki saman heldur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.