Ritmennt - 01.01.2003, Page 73

Ritmennt - 01.01.2003, Page 73
RITMENNT BJÖRN GUNNLAUGSSON OG NÁTTÚRUSPEKIN í NJÓLU Viðaukar: Kenning Björns Gunn- laugssonai um innsta eöli efnis- ins117 A. Úr skýringum Björns við 436. erindi Njólu: Þegar menn róa á skipi, og einhver nær eklci til með fótunum að spyrna í reyngurnar, þá segir hann; „Eg get ekki róið, því eg hef aungva við- spyrnu"; tekur hann þá hlunn, eða austurtrog, setur fyrir iljar sér, og spyrnir í. Auðvitað er, að hér með er meintur kraptur sá, sem í hlunninum er, til að spyrna á móti mannsiljinni, því ónýtt væri að spyrna í hlunninn, ef hlunnurinn spyrnti ekki á móti; svo að viðspyrnan er þá mótspyrna. En svo lítið sem menn taka almennt eptir þess- um krapti, þá er þó hægt að sjá, að hann er það verkfæri eða réttara sagt átak almættisins, með hverju það skapar allt hið þreifanlega, sýnilega, heyranlega, þefanlega og smakkanlega, hvort sem það er á himni eða jörðu. Því ef vér hugsum eptir, hvernig fara mundi, ef guð sleppti um eitt augnablik þessu eina átaki sínu, þá er auðvitað, að vér gætum á aungvu þreifað, því áþreifingin væri þá eins og fálmun út í autt rúm. Eklcert yrði séð, vegna þess að enginn hlutur gæti þá sent frá sér ljósgeislana í augað. Upp á sama máta kæm- ist ekkert hljóð til eyrans, ilmurinn hrifi ekki á nasirnar, né smekkurinn á góminn. I einu orði: allur sá sýnilegi heimur væri hvorfinn, og vor líkami með. Af þessu sýnist, sem allt hið þreif- anlega sé innifalið í mótspyrnunni, heptri eða tempraðri upp á ýmislegan máta af samloðunar- aflinu. Til að gjöra sér skiljanlegt, hvernig mótspyrn- an hagar sér, þá aðgæti maður, t.d. eina handfylli af mold. Kreisti maður hana í lófa sínum, þá spyrnir hún á móti, og það því fastar, sem fastar er kreist. Þessi kraptur geingur út frá moldinni á allar síður, eins og geislar frá sólu, og setur sig á móti þeim krapti, sem lófinn kreistir með, og sækir inn í moldina. Þar mæta því aflgeislar lófans aflgeislum moldarinnar. Sundri maður nú moldar handfyllina, og talci eitt einasta korn, og klípi það milli fingurgómanna, þá sýnir það alla sömu eiginleika og handfyllin áður, að aflgeislar þess spyrna einnig í allar áttir út frá því. Nú er ltornið einnig samsett af óteljandi minni pört- um, út frá hverjum einnig aflgeislar gánga, og varna því, að korninu verði samanþrýst í óend- anlega lítinn púnkt. Nú er spurning: hvort deiling þessi eða sundr- un geti gengið endalaust eða eklci, ef mannleg handastjórn aldrei þryti. Gengi hún endalaust, þá gætu að sönnu harðir líkamir komið þar af, en stæltir líkamir gætu eltki framkomið, vegna þess að þá yrði ekki lát á neinu, nema þar sem brotn- aði inn, hvar holur væru, en líkamirnir gætu ekki tekið sig aptur, eða þanið sig út, þegar hætt væri að kreista. Þess vegna má deilingin ekki gánga endalaust, heldur hlýtur maður að ímynda sér lolcsins aðgreinda púnkta, sem séu án allrar stærðar með svo litlum millibilum, að yfirgángi allan mannlegan rannsóknarkrapt. Frá hverjum þessara púnkta, sem raunar eru ekkert, heldur öldungis tómir, verða að gánga aflstraumar í all- ar áttir eins og geislar, og spyrna á móti aflgeisl- um hinna púnktanna. Hér er nú ekkert annað en andlegir kraptar, sem spyrna hver á móti öðrum, og er það almættið sjálft, er spyrnir á móti sjálfu sér. Nú eins og sólargeislinn er samsettur af ljós- ögnum, eða öldum, sem streyma hver á eptir annarri, svo verður líka aflgeislinn að vera sam- settur af rykkjum, er lcoma hver á fætur öðrum. Eptir því sem þessir rykkir fara lángt út frá sín- um útgángs-púnkti, eptir því verða frumagnirnar stærri, og eptir því verður líkaminn stæltari. Þar á móti verður líkaminn því stælingar-minni, sem aflgeislinn er styttri og ryklcirnir fara skemmra. En harka og linka hlutanna fer eptir því, hvað þeir eru holóttir, og eptir því hvernig samloðunaraflið hagar sér. Því nær sem útgángs- púnktarnir færast hver að öðrum, því stríðari verða aflgeislarnir, af því þeir þéttast þar og sam- einast. Ef frumögnin ekki endurnýaðist hvert augna- 117 Stafsetning liefur sums staðar verið færð til nú- tímalegra horfs. 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.