Stígandi - 01.04.1947, Síða 52
kynni. Heimkynni — þetta var í fyrsta skiptið, sem hún gaf ís-
landi það nafn. Hún hlakkaði til að sjá börnin aftnr. En hvað
hún hafði orðið að vera lengi án þeirra! Hún hlakkaði til starfs-
ins lieima og til að hitta Hauk. Enn þá hálfur mánuður, ó, að ég
gæti verið komin heim á morgun.
Á heimleiðinni datt henni nokkuð í liug, sem hleypti roðanum
fram í kinnar hennar og örvaði hreyfingar hennar. Faðir hennar
sat rólegur í sólbyrginu og var að lesa blöðin, þegar hún kom
heim.
,,Pabbi, nú liefr ég nokkuð,“ kallaði hún með nreiri akafa
en hún var vön, „þú kemur nreð nrér heirn til íslands og verður
lrjá okkur unr tínra. Hér ert þú svo einmana, síðan Helga fór.
Og þú þarft h'ka að sjá dótturbörnin þín,“
,,Á ég á gamals aldri að fara að leggja út í slíka ferð?“
,,Já, það átt þú.“
María sópaði öllum hi-ndrunum úr vegi. Nú yrði skilnaðurinn
henni léttari, úr því að hún gat tekið með sér Jrað ástfólgnasta frá
gamla ættlandinu.
Hnittnar líkingar og hugdettur.
Þarna stóð bjálkakofinn litli, friðsæll í sunnudagskyrrðinni og reykti skorstein-
inn sinn. Max A. Nagler.
Tunglið skaut skýjunum til hliðar, eins og þau væru vængjahurðir.
Erich Kastner.
Hann var með þessum sjálfumglaða svip, sem iðulega er á auglýsingum um óslít-
andi nærföt. P • G. Wodehouse.
Smithhjónin áttu von á fyrsta skattfrádrætti sínum um miðjan nóvembermánuð,
Walter Wincheil.
Þrjá stundarfjórðunga lá hann glaðvakandi alla nóttina. Punch.
Hann kom forsælumegin frá ættartrénu. Jóseph Mitchell.
Sjálfir töluðu þeir svo grindhorað bókmál, að það mátti telja málfræðirifin
i tómyrðum þeirra. J- P- Jacobsen.
Hann var ekki fæddur til að klifra um greinar skilningstrésins.
Sigrid Undset.
Kjóllinn var af þessari æsandi gerð, sem er nú í tízku: aðeins andardrátturinn
hélt honum uppi. Annonsörin.
Hann var maður með glæsilega framtíð að baki sér. J. B. Priestley.
Hún kom ekki til að lcita ráða hjá mér; hún ætlaði að nota ntig eins og pappírs-
körfu fyrir áhyggjur sínar. Elizabeth Cambridge.
-------Hula-hula dansmeyjar með kúlulegur í mjöðmunum. Ray P. House.
Erfiðleikar eru aðeins tækifæri í hversdagsfötum. Henry J. Kaiser.
130 STÍGANDI