Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 38
Tímarit Máls og menningar menn samfélagsins, þó auðhyggjan sitji í öndvegi hjá hvorum tveggja. Þyki einhverjum gengið feti of langt í túlkunum skal til viðbótar minnt á hug- tökin „verslunarauðvald" og „útgerðarauðvald“ sem gjarna hafa verið not- uð um hina tvo arma íslenskrar borgarastéttar - og hver afstaða þessara arma var t.d. er herstöðvamálið bar fyrst á góma. I Gerplu kemur síðar fram að hinn harðlyndi höfðingjasonur, Vermundur, unir illa ófriði og yfirgangi erlendra konunga er seilast vilja til valda á Islandi en auður kaup- mannsins og friðflytjandans Þorgils á sér ýmsan uppruna annan en frið- saman. Þorgils á hlut í skipi með kaupmönnum sem „vóru svo kaupmenn að þá keyptu þeir við menn er þess var kostur, en ræntu að norrænum sið þar sem eigi vóru menn fyrir líklegir að verja eigur sínar“.16> Fleiri dæmi mætti nefna en hér skal þess aðeins getið að Vermundur er gjarna einkenndur með hinni fornu goðanafnbót meðan Þorgils fær hinn nýtískulega titil „auðkýfíngur“ eða er kenndur til kaupmennsku á einn eða annan veg.17) IV Aldo Keel er í hópi þeirra manna sem telur Gerplu marka nokkur hvörf á höfundarferli Halldórs. Hann heldur því m.a. fram að saga Olafs digra beri í bókinni vitni um að sögur Halldórs séu að fjarlægjast íslenskan veruleik. Hann segir að Ólafur sé samnefnari pólitíkusanna í Gerplu og í honum birtist sameinuð eyðingaröfl sögunnar. En þar eð hann gangi fram með nöktu ofbeldi skírskoti hann til annarra samfélaga en hins íslenska; kapítal- isminn á Islandi beiti ekki báli og brandi heldur duldu ofbeldi.18) Vilji maður verða nokkurs vísari um Ölaf digra er ágætt að athuga lýs- ingar á limaburði og leggjalagi ýmissa persóna í Gerplu. Frá því er m.a. skýrt að Ólafur sé kiðfættur og ilsiginn en Ríkarður Rúðujarl tindilfættur. Um fótaburð og leggi Knúts konungs er ekki farið beinum orðum en sennilega er hann beinfættur og „kann sig“ ótvírætt í limaburði, samanber eftirfarandi lýsingu á honum: „. . . hann nam í bernsku þær íþróttir er heyrðu tígnarmönnum, vígfimi og riddaraskap, og bera vopn eða klæði . . . eftir kurteisi þeirra barúna er hlýddu keisaran- um.“19) Er höfðingjar víkinga ganga til skírnar í Rúðu er þess sérstaklega getið að í hópi þeirra eru „lágir ístrumenn, kríngilfættir og hnakkakertir (leturbr. bk.)“.20) Snemma í sögunni kemur einnig fram að á 11. öld hafi flestir karlmenn á Islandi verið „lágir vexti og bjúgfxttir (leturbr. bk.) . . . knýttir og kreptir af kveisu“ þar eð feitmeti var „lítt haldið til alþýðu.“ 21) I hópi þessara manna er Þorgeir Hávarsson „eigi hár til knés og nokkuð kríngilfœttur (leturbr. bk.)“.22) Lýsingum af þessu tagi er m.a. ætlað að svipta blekkingarhjúpnum af kappaímynd fornsagnanna. Mestu skiptir þó 292
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.