Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Blaðsíða 52
Tímarit Máls og menningar
I Normandí bjargar kona nokkur lífi hans eftir að hann hefur átt þátt í
að drepa mann hennar. Þegar þessi kona leggst grátandi fyrir framan hetj-
una í hvílu hans fáum við í fyrsta sinn að sjá Þorgeir Hávarsson hræddan:
En Þorgeiri garpi Hávarssyni var eigi sú list lagin að hugga konur og hefst
hann eigi að. Finnur hún glögt að gesturinn skilur eigi tár hennar þá er hún
grætur, fremur en mál hennar er hún kostar að mæla við hann, en liggur fyrir
ofan hana sem annar timburstokkur, með stjarfa í andliti svo sem sá maður
er af svefni vaknar við það að skriðið hefur í hvílu hjá honum eitt forógnar-
mikið león meðan hann svaf, reiðubúið að hremma hann og eta upp ef hann
deplar auga. Og að lokum bregður konan á það ráð að þerra af sér tárin.
(256)
Á bak við háværa kvenfyrirlitningu Þorgeirs býr skelfingin sem grípur
hann þegar konan leggst hjá honum og vill að hann huggi sig. Hann hafnar
konunni með þeim rökum að hann vilji ekki bregðast væntingum Þor-
móðs, fóstbróður síns - það segir okkur að Þorgeir velur að halda fast við
sína fyrri lífsskoðun þó að hann viti nú betur. Við munum koma aftur að
þessu vali og óttanum — sem okkur var sýndur.
III
Þormóður Bessason er gerður andstæða Þorgeirs Hávarssonar á öllum
sviðum. Þormóði er lýst sem fallegum karlmanni; hann er beinvaxinn,
grannvaxinn og fagurlimaður. Hann er glaðlyndur, áhrifagjarn og erótísk-
ur. Það sem sameinar hann og Þorgeir og verður grundvöllur fóstbræðra-
lagsins eru stórmennskuhugmyndir beggja. Olík viðhorf þeirra til kynferð-
ismála og kvenna er það sem þá virðist greina mest á um — eins og fram
kom í tilvitnun hér að framan.
I Gerplu er Þormóður móðurlaus, móðir hans er fjarverandi í bókinni og
hvergi getið. Þormóði er „gott til kvenna“ eins og það er kallað. Ferðir
hans út og inn um litla glugga bændadætra eru óteljandi en aðeins tvær
konur leika stór hlutverk í lífi hans; Kolbrún og Þórdís. Þessar tvær konur
eru andstæður; Kolbrún er dökk, þrekin, holdleg - tröllkonan sem ræður
yfir undirdjúpunum; Þórdís er ljós, grönn, meyja - valkyrjan sem ríður yf-
ir himinninn.
Þormóð dreymir að þessar konur kasti fjöreggi hans/lífi hans á milli sín.
Það er athyglisvert að Þormóður er algjör þolandi í eigin draumi, það eru
konurnar tvær sem ákvarða líf hans. Þetta sýnir fyrst og fremst að Þor-
móður getur ekki, eða vill ekki, velja á milli þeirra.
Danski bókmenntafræðingurinn Thomas Bredsdorf hefur skrifað bók
sem heitir Börn Tristans^, um sams konar afstæður og lesa má út úr ástarlífi
\
306