Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 70
Fríða Björk Ingvarsdóttir Glugginn Þykk þoka lá yfir dalnum í morgunsárið. Eftir því sem leið á leystist hún upp í þunnar slæður sem loks viku fyrir sterkri sólinni. Er kon- urnar lögðu af stað úr þorpinu var kastalinn enn hulinn þoku- slæðingi. Hann virtist nálægari og stærri en ella, sveipaður dular- hjúp. Kastalinn hafði staðið þarna á klettinum í þúsund ár. Þessi stein- runni risi gnæfði yfir þorpið sem hímdi rislágt við klettaræturnar. Líkt og hundur hjá húsbónda sínum. I gegnum aldirnar hafði verið stöðug líftaug ofan af klettinum í þorpið. Kastalinn veitti þorpsbú- um skjól við fætur sér og í staðinn guldu þeir honum vinnu sína eða jafnvel líf sitt ef að svo bar undir. Nú tilheyrði kastalinn ríkinu sem notaði hann á svipaðan hátt og áður hafði verið gert, til veisluhalda og ráðagerða. Þegar eitthvað var um að vera í kastalanum var hann upplýstur með bleikum flóðljós- um sem léku um hann eins og glitrandi samkvæmisklæði. Bjarminn var svo skær í náttmyrkrinu að hann glampaði á öllum skjám í þorp- inu. Konurnar gengu í hóp eftir steinlagðri götu sem hlykkjaðist upp á klettinn. I fjarlægð minntu þær á riddara fortíðarinnar þar sem þær fylktu liði með skrúbbana reista um öxl og dökka skýluklúta á höfði. Tilbúnar til atlögu. Loks komu þær þungstígar og móðar yfir brúna inn í kastalagarð- inn. Það var sem gamlir og rótgrónir veggirnir hæddust að konun- um þegar fótatak þeirra bergmálaði og endurkastaðist á milli þeirra löngu eftir að þær numu staðar. Innst í kastalagarðinum beið fjör- gamall karl eftir þeim. An þess að yrða á þær benti hann þeim að koma nær. Hann hélt á stórum smíðajárnslykli sem hann snéri í skrá á þungri eikarhurð. Hurðin opnaðist hægt líkt og gin á gríðarstórri skepnu. Konurnar stigu ein af annarri inn í bláleitt rökkrið innifyrir. 324
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.