Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 76
Silja Aðalsteinsdóttir Skáldkona á tímamótum Jane Austen og Hroki og hleypidómar í haust kemur út hjá Máli og menningu skáldsagan Pride and Prejudice eft- ir ensku skáldkonuna Jane Austen. Hún var fyrst gefin út árið 1813 og var önnur bók höfundar sem þá var 38 ára, ógift prestsdóttir í. Hampshire á Suður-Englandi. Bækur sínar gaf hún ekki út undir nafni. Fyrstu bókina hafði hún gefið út undir dulnefninu A Lady (Kona) en á titilblaði þessarar bókar kenndi hún sig við þá fyrri: By the author of „Sense and Sensibility“ (Eftir höfund „Vits og viðkvæmni“). I nýju íslensku þýðingunni heitir skáldsagan Hroki og hleypidómar. Hroki og hleypidómar varð strax mjög vinsæl meðal almennra lesenda og er sú bók sem heldur nafni höfundar síns hæst á lofti þó að margir fræðimenn taki aðrar bækur Jane Austen fram yfir hana. Fyrstu gerð sög- unnar reyndi faðir Jane að selja útgefanda í London strax 1797 þegar hún var 22 ára, og þó að við höfum orð Jane sjálfrar fyrir því að hún hafi endur- unnið söguna mikið, þjappað henni saman og gert hana hnitmiðaðri þá telst hún tvímælalaust til æskuverka Jane Austen, minnir víða, einkum framan af, á eldfjörug bréfin sem hún skrifaði Cassöndru systur sinni upp úr tvítugu. (um fjölskyldu Jane og ævi vísa ég í eftirmála þýðingarinnar.) Oft er eins og fjörið flæði yfir bakka sína í þessari sögu sem sjaldan gerist í seinni verkunum: Mansfield Park sem kom út 1815, Emmu (1816) og „For- tölum“ sem kom út 1818, að höfundi látnum, ásamt æskuverkinu Nort- hanger Ahbey. Kannski er það einmitt þess vegna sem mönnum hefur sést yfir hvað Hroki og hleypidómar er djúphugsuð og vel skrifuð bók. Þó að hún sé „gömul“ og „sígild“ er hún svo skemmtileg að maður þarf enga afsökun fyrir að lesa hana. Hún var líka að ýmsu leyti afar nýstárleg saga þegar hún kom út, og Jane Austen er af mörgum talin fyrsti höfundur sem tekst að skrifa skáldsögu sem virkilega stendur undir nafni. „Raunar má segja að hún hafi skapað nútímaskáldsöguna,“ segir Barbara Hardy í bók sinni, A Reading of Jane Austen (bls. 11). 330
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.