Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 77
Skáldkona á tímamótum
Efni og frásagnarháttur
Hroki og hleypidómar gerist meðal landeigenda og heldra fólks í Englandi
á ritunartíma sögunnar. Hún fjallar um líf þessa fólks, siði þess og lífsvið-
horf, en einkum er hún þó ástarsaga og saga um ástir. Mörg pör ganga þar
út á gólfið, en eitt parið, Elísabet Bennet og landeigandinn Darcy, dansar
allmiklu flóknari spor en hin. Og þó að það sé nokkuð ljóst strax í miðri
bók hvað gerist í lífi aðalsöguhetjanna er spennandi fram á síðustu stund að
vita hvernig það gerist. Til fjögurra hjónabanda er stofnað í sögunni, fyrir
utan allt daðrið og allar vonirnar sem eðlilega bregðast þegar sumar af þess-
um glæsilegu og skemmtilegu persónum ganga út.
Sagan er sögð frá sjónarhóli ungs fólks. Sögumaður er fullur áhuga á
ungum söguhetjum sínum, stendur með þeim í löngun þeirra til að verða
hamingjusamar og gerir gys að hinum fullorðnu sem ekkert vita og ekkert
skilja. Um leið er hann merkilega fjarlægur söguhetjunum og sýnir þær
hvað eftir annað í skoplegu ljósi. Hugsanlega má sjá hér mun á höfundi
fyrri og seinni gerðar verksins, en þetta hefur fyrst og fremst þau áhrif að
draga úr viðkvæmninni sem söguefnið býður upp á, gera söguna fyndna en
ekki væmna.
Jane Austen vinnur með fólk fremur en hugmyndir eða viðburðaríka at-
burðarás. Barbara Hardy leiðir rök að því í áðurnefndri bók að Jane hafi
orðið fyrst breskra skáldsagnahöfunda til þess að skapa þéttbýli í skáld-
sögu. Fram að því höfðu skáldsögur verið um eina persónu, segir hún;
söguhetjan stóð oftast ein, í kringum hana voru manngerðir frekar en fólk,
enda skiptu atvik og boðskapur meira máli en samskipti persóna. Samspil
persóna og þróun þeirra eru hins vegar meginatriði í bókum Jane Austen,
þar gerast sögur hennar, og eitt helsta einkenni á frásögninni er hvað hún er
dramatísk. Mörg og löng og skemmtileg samtöl afhjúpa innri mann per-
sónanna og sambandið milli þeirra. Annað einkenni og þessu tengt er til-
finningin sem lesandi fær um að höfundur viti miklu meira um sitt fólk en
hún lætur uppi. Jafnvel aukapersónur fá fleiri en eina vídd.
Persónusafn Hroka og hleypidóma er auðugt og eins og í dansinum sem
leikur svo stórt hlutverk í sögunni stíga persónur fram í pörum, ekki bara
ástföngnum pörum heldur líka markvissum hliðstæðum og andstæðum
sem varpa ljósi á tíðaranda, samfélag og skoðanir höfundar.
Fyrsta persónan sem við heyrum til í Hroka og hleypidómum er frú
Bennet, móðir söguhetjunnar Elísabetar og systra hennar fjögurra. „Hef-
urðu frétt að það er loksins búið að leigja Netherfield Park,“ segir hún við
mann sinn, og í samtalinu sem á eftir fer berar hún sitt helsta áhugamál: að
koma gjafvaxta dætrum sínum í hjónaband með góðu eða illu. Hún hefur
frétt að ungur efnamaður, Bingley að nafni, sé að flytja í nágrennið og vill
331