Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 101
Myndir á Sandi Höfundur Fuglsins lýsir afstæðum tíma sem líður mishratt, óræðum tíma, hlykkjóttum og síbreytilegum. En um leið reynir hann að upphefja óreiðuna í frumspekilegri hugmynd um samveru alls tíma. Hann fellir skynjunina inn í goðsögulegt munstur og gerir hana á þann hátt bærilega. III Sagt hefur verið að texti Fuglsins líði í hring: hugur manns grípi dauðahaldi í ytri veruleika, leysi hann upp með skyggni sínu og samlagist honum. Síð- an taki ný hringrás við24. Þetta er ekki rétt nema að vissu marki. Sé textinn lesinn „lárétt" líkt og hefðbundin frásögn sundrast hann fyrir augum les- anda. Sé hann á hinn bóginn lesinn „lóðrétt" líkt og djúpsætt ljóð kemur í ljós að hvert brot er hluti heildarmyndar, að sundrung og eining búa í text- anum sem andstæð skaut og samstæður. Fuglinn lýsir reynslu sem þyngist þegar á líður. I upphafi neitar „maður- inn“, ímynd mennsku, einmanaleika og sköpunar, staðreyndum sem reynst hafa honum óbærilegar. Undir lokin viðurkennir hann þær vitandi að lífið er fáránlegt: harmleikur og draumleikur í senn en umfram allt barátta, að það er hildarleikur vitundar og tíma þar sem sérhver verður að geyma næmi sitt og sérstöðu en lifa um leið með öðrum, varðveita eðlin tvenn, líf- ið hið innra og ytra, ómælið og tímanleikann; að það er öðru fremur háskaleg jafnvægislist. Með öðrum orðum: Maður á flótta breytist í „ab- súrdan“ mann sem veit að lífið er slagur og krefst sífelldrar árvekni. Hann gerir sér enga von um endanlegan sigur. Væntir þess eins að geta réttlætt tilveru sína og lifað með reisn, með augun heil. Verkið lýsir þannig leit manns að eigin samsemd og samhengi. Texti Fuglsins einkennist eins og fram hefur komið af fjölskrúðugum gjörlýsingum, víðtækri notkun nafnskipta. Engu að síður er vitund „mannsins" öðru fremur myndhverf því að skynjun hans vekur sífellt nýjar myndir, líkingar og andstæður. Myndirnar sækir hann ýmist í eigin reynslu eða sögu kynslóðanna, listir og skáldskap, stjórnmál dagsins og trúar- brögð. Hin ólíkustu merkingarsvið tengjast og falla saman eða öllu heldur dulið samtak þeirra er opinberað. Textinn er og hlaðinn leiðarminnum og táknum sem birtast aftur og aftur í breyttri mynd: skógur, kross, dans, vatn, sól, tungl . . .25 Þessar tilvísanir ná hámarki í goðsögulegri mynd- hverfingu textans alls og er í senn andleg og tæknileg. Hún gæðir óreiðuna formi og sjálfið festu, breytir línu í hring. Felur í sér og endurnýjar hugs- unarhátt sem lengi hefur verið hafnað sem þekkingarleið. Mannhverf sjón: samræöa sjálfs og heims Myndhvörf fela í sér mannhverfa sýn. Þau binda saman fyrirbæri og fella í eitt aðskilin merkingarsvið. Með þeim hætti gera þau heiminn að sjálfs- 355
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.