Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 50

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 50
Ólafur Grétar Kristjánsson Himnaríki er ekki fávitahæli (Gvuð) Árið 1992 gaf Mál og menning út ritið Sögustund, sem er safn stuttra sagna og ljóða eftir íslenska barnabókahöfunda. Silja Aðalsteinsdóttir valdi til verksins og endursagði vinsælar þjóðsögur, barnaljóð og frásögur eftir þá íslenska höfúnda sem hafa notið einna mests eftirlætis yngri lesenda. Hér má frnna sögur höfunda eins og Guðrúnar Helgadóttur, Ármanns Kr. Ein- arssonar, Jennu og Hreiðars Stefánssonar, Sigurbjarnar Sveinssonar o.fl. o.fl. Ritið er einstakt að gæðum og gefur jafnframt góða yfirsýn yfir flóru íslenskra barnabókmennta á 19. og 20. öld. Þetta þekkja foreldrar sem hafa mátt lesa sömu sögurnar fyrir afkvæmi sín kvöld eftir kvöld á þessum tæpu þremur árum sem liðin eru síðan ritið kom út. En lesturinn verður einnig til þess að opna augu eldri lesenda fyrir því sem vel er gert af höfundum barnabóka. Allir eiga sér sína uppáhaldshöfunda og hlýnaði karli um hjartarætur að sjá í bókinni sögur Hendriks Ottóssonar og Þórbergs Þórðarsonar. Hendrik skrifaði sínar prakkarasögur úr Vesturbæ á árunum 1949-64, og hver man ekki eftir þeim vaska Gvendi Jóns og ógnvaldi hans, Hollu gúaften? Hendrik hafði vafalaust börn í huga er hann skráði sögur sínar. En fýrir hvern skrifaði Þórbergur Sálminn um blómið? Er bókin ætluð fullorðnum eða börnum? Er hún eðlilegt framhald af Ævisögu Árna prófasts Þórarins- sonareða Viðfiarðarundrunum? Var það ásetningur Þórbergs að skrifabarna- bók þegar hann skrásetti lífshlaup lillu Heggu fyrstu æviárin? Mig langar til þess að fjalla lítillega um þessar spurningar hér á eftir, um leið og ég leitast við að varpa ljósi á helstu einkenni Sálmsins. Eins og flestir lesendur vita vafalítið kom Sálmurinn um blómið út í tveimur bindum á árunum 1954-55. í ritinu er fjallað um samskipti Þór- bergs (fædds 1888) og Helgu Jónu Ásbjarnardóttur (fæddrar 1943). Sögu- sviðið er heimili Þórbergs við Hringbraut og næsta nágrenni þess á árabilinu 1943-54. Við sögu koma auk ofannefndra eiginkona Þórbergs, kölluð Mammagagga, foreldrar Helgu Jónu, Asipabbi og Sjókamamma, og vinir og venslafólk. Eitt megineinkenni Sálmsins er að Þórbergur bregður fyrir sig 48 TMM 1995:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.